Sunnudagur 28. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Náttúrulegt og notalegt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Náttúran er rauði þráðurinn í gegnum tískustrauma í ár, líka þegar kemur að litum. Allt frá dempuðum grænum og gráum tónum yfir í djúpan bláan lit. Jarðlitatónar á borð við gulbrúnan, brúnan, rústrauðan yfir í muskutóna verða einnig áberandi. Þessi litapalletta minnir okkur á veðurfarið og þróun litaumhverfis okkar hvort sem það er í innanhússhönnun, arkitektúr eða á tískupöllunum.

Í dag snýst þetta í miklu mæli um að bera virðingu fyrir náttúrunni.

Græna litinn má einnig draga fram á heimilinu í formi plantna sem ýta undir tengsl okkar við náttúruna og fríska upp á heimilið. Undanfarin ár hefur mikið verið rýnt í áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga sem reynt hefur verið að sporna við með aukinni áherslu á sjálfbærni. Naumhyggjan teygir anga sína inn á heimilin og sést hún í hönnun og byggingu mannvirkja almennt. Í dag snýst þetta í miklu mæli um að bera virðingu fyrir náttúrunni. Með þessu gefur þú heimilinu náttúrulegt útlit sem einnig má blanda saman við nýstárlegri efni og hluti.

Djúpir litatónar setja hlýlegan svip á heimilið.

Litir sem undirstöðuþættir náttúrunnar sjást í auknu mæli inni á heimilunum, hvort sem það er í formi málningar, málverka, vefnaðar eða veggfóðurs en jarðlitatónar eru meðal annars sagðir hágmarka þægindi, kyrrð og ró.

Mynstur í dag eru allavega, allt frá einföldum formum og blómum yfir frumleg og ævintýraleg mynstur, en veggfóður hafa sjaldan verið jafn vinsæl. Það virðast okkur engin takmörk sett þegar kemur að mynstri og áferð.

Rústrauðir og terracotta-tónar verða sjóðheitir á árinu.
Liturinn Tranquil Dawn er heitur á árin
Náttúruleg áferð og efni verður sífellt meira áberandi – terracotta, marmari og málmar halda velli. Lifandi og tímalaust.

Myndir / Frá framleiðendum

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -