Ofurgyðjan Ásdís Rán hefur landað einu af aðalhlutverkunum í nýjustu kvikmynd Lorenzo Faccenda; en sá er ítalskur leikstjóri.
Það er Smartland sem greindi fyrst frá.
Kvikmyndin verður tekin upp í Austur-Evróðu – nánar tiltekið í Búlgaríu; er Ásdís Rán nú á leið út í tökur.
„Ég fékk draumahlutverk. Ég leik hjákonu auðugs manns og ræð mann til þess að drepa konuna hans. Myndin er tekin upp á ensku og fara tökur fram í Búlgaríu en myndin á að gerast í Evrópskri stórborg.
Tökur hefjast í byrjun apríl en ég fer út í næstu viku. Ég á eflaust ekki erfitt með að setja mig í þetta hlutverk. Það væri miklu erfiðara fyrir mig að leika bókasafnsvörð. Það er auðvelt fyrir mig að setja mig í „fansy glamúrhlutverk“ því ég hef góða reynslu af því í gegnum auglýsingar og myndatökur,“ segir Ásdís Rán og bætir við:
„Ég er að dunda mér í handritinu núna. Læra söguþráðinn og textana mína. Þetta kom bara inn á borð fyrir um mánuði þannig að ég hef ekki mjög mikinn tíma til að undirbúa mig.“