Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Heimur

Lítið fyr­ir­bæri í geimnum vekur stórar spurn­ingar

„Byrjaði snemma að syngja um sorg og drama“

Elín Eyþórs­dóttir, betur þekkt sem Elín Ey, hefur komið víða við á ferl­inum en hún var að senda frá sér plöt­una Gone. Platan er frá­brugðin fyrri verkum en bróðir hennar Eyþór Ingi, eða Bleache eins og hann er kall­aður í brans­anum, pródúser­aði plöt­una.

„Hann er svo „brilli­ant“ tón­list­ar­maður. Ég er aldrei eins ánægð með tón­list­ina mína eins og þegar hann vinnur og pródúserar lögin mín. Hann skilur hvaða hljóð­heimi ég leit­ast eftir og það heyr­ist vel á plöt­unni, held ég,“ segir Elín og getur þess að platan hafi verið lengi í vinnslu. „Ég samdi mörg lag­anna síð­ustu ár, en þessi fimm fannst mér vera góð heild, í raun eitt heild­ar­verk.“

Elín segir plöt­una vera frá­brugðna öllu því sem hún hafi gert áður, að því leyti að hún sé nán­ast öll samin á píanó, en hingað til hafi hún oft­ast samið á gítar og spili fyrst og fremst á það hljóð­færi. „Fyrri verk hafa verið meira út í „country folk“ á meðan þessi plata er meira „R&B Soul“,“ útskýrir hún. „Nokkuð sem mig hefur alltaf langað til að gera, enda er þetta tón­list sem ég tengi mikið við. Þannig að ég er voða ánægð með þetta.“

Elín er sem kunn­ugt er dóttir tón­list­ar­fólks­ins Ellenar Krist­jáns­dóttur söng­konu og Eyþórs Gunn­ars­sonar, píanó- og hljóm­borðs­leik­ara, og hefur allur systk­ina­hóp­ur­inn verið við­loð­andi tón­list. Fyrir utan að hafa unnið með Eyþóri Inga bróðir sínum að tón­list, hefur Elín líka starfað með systrum sínum, Sigríði og Elísa­betu, en þær voru saman í hljóm­sveit­inni Sísý Ey, sem gerði m.a. vin­sæla ábreiðu af lag­inu Ain’t got nobody um árið. Í ljósi þess er ekki úr vegi að spyrja hvort Elín hafi fengið tón­list­ina með móð­ur­mjólk­inni eða hvort hún hafi valið að gera tón­list­ina að ævi­starfi. „Ég fékk nú ekki skipu­lagt tón­list­ar­upp­eldi, en þegar for­eldrar manns eru í tón­list þá fylgir því oft hangs á æfingum og sánd­tékkum og við­vera bak­sviðs á tón­leikum, þannig að maður er stans­laust í kringum tón­list, sem er auð­vitað geggjað,“ segir hún og bætir við að það að hafa fjöl­skyld­una sína, þetta flotta tón­list­ar­fólk, sér við hlið í dag, sé að sjálf­sögðu ómet­an­legt.

„Það var þá sem ég samdi fyrsta lagið mitt og til­eink­aði það systur minni sem hafði flutt til útlanda. Það særði mig nefni­lega svo að hún skyldi yfir­gefa mig.“

Hvað var hún eig­in­lega gömul þegar tón­list­ar­á­hug­inn kvikn­aði? „Þegar ég var ell­efu ára og fékk klass­ískan gítar í jóla­gjöf. Það var þá sem ég samdi fyrsta lagið mitt og til­eink­aði það systur minni sem hafði flutt til útlanda. Það særði mig nefni­lega svo að hún skyldi yfir­gefa mig. Já, ég byrj­aði sem sagt mjög snemma að syngja um sorg og drama,“ segir hún og kímir.

Og hvað er það við tón­list­ina sem heillar? „Það er þegar hún fangar líðan manns og umvefur mann ein­hvers konar sam­kennd og maður fær á til­finn­ing­una að ein­hver skilji hvernig manni líður.“

En hvar sérðu þig eftir 10 ár? „Mig langar til þess að vera með eigið stúdíó og vera búin að pródúsera ein­hverjar plötur fyrir aðra,“ svarar hún hik­laust. „Ég myndi áfram vilja gefa út tón­list og vera búin að þroskast og læra miklu meira um það að semja og spila músík.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eldur í skóla

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni og hafði afskipti af nokkrum ökumönnum
Heimur

Meintur flug­dólgur sleppur með hluta skrekks­ins

Heimur

Ísraelar hefja hern­að­ar­að­gerð í mið­hluta Gaza

Heimur

Greene telur trufl­an­irnar eftir kosn­ing­arnar ekki til­viljun

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið