Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Hefur ekki fundið fyrir fordómum á Íslandi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kathiravan Narayanan, eða Kathir eins og hann er gjarnan kallaður, segist hvergi annars staðar vilja búa en á Íslandi og stefnir á að sækja um ríkisborgararétt innan fárra ára. Hann er einn af fjölmörgum erlendum vísindamönnum hjá líftæknifyrirtækinu Alvotech hér á landi en hjá því starfa vísindamenn og sérfræðingar af 50 ólíkum þjóðernum. Saga Kathir er saga af fjölskyldu sem flýgur hálfan hring í kringum jörðina til að koma í gjörólíkan menningarheim á Íslandi. Hér hefur hann blómstrað bæði í starfi og einkalífi.

Kathir flutti hingað frá Indlandi fyrir þremur árum ásamt eiginkonu sinni, Priya Jayaraman, og tveggja ára dóttur þeirra, Deekshita Kathiravan. Öll hafa þau aðlagast vel íslensku samfélagi. Dóttirin er nú orðin fimm ára og blómstrar í íslensku skólakerfi. Hún hefur tilkynnt föður sínum að hún vilji ávallt búa á Íslandi.

Ánægjuleg upplifun að eignast barn á Íslandi

„Dóttir mín hefur verið í leikskólanum Lindaborg þar sem allt starfsfólkið, einkum María, er mjög vinsamlegt og hjálplegt. Leikskólakerfið er mjög gott með skapandi starf. Ég hef verið mjög glaður að fylgjast með henni í skólanum. Hún er farin að tala góða íslensku og er þegar búin að tilkynna okkur það að héðan mun hún ekki vilja flytja enda mjög ánægð. Hún er bara til í að fara í frí til Indlands,“ segir Kathir.

Árið 2014 gengu Kathir og Priya í hjónaband og eignuðust dótturina ári síðar á Indlandi. Fyrir tæpum þremur mánuðum eignuðust þau svo sitt annað barn hér á Íslandi, soninn Shaam Kathiravan. Kathir er mjög ánægður með heilbrigðisþjónustuna sem þau hafa fengið. „Þetta var mjög ánægjuleg upplifun að eignast barn hér á Íslandi. Við vorum bæði mjög ánægð með þjónustuna sem við fengum í gegnum alla meðgönguna og fæðinguna. Núna eru þrjár konur í hópnum ófrískar og eftir frásagnir okkar af kerfinu hafa þær ákveðið að fæða börnin líka hér á Íslandi,“ segir Kathir og vísar þar í hóp indverskra starfsmanna hjá Alvotech og fjölskyldur þeirra.

Mikil lífsgæði

- Auglýsing -

Kathir ólst upp í bænum Rayakottai á Indlandi ásamt tveimur systrum. Faðir hans vann hjá hinu opinbera á meðan móðir hans var heimavinnandi húsmóðir. Eftir að hafa lokið grunnámi í heimavistarskólum lauk hann framhaldsnámi í líftækni og starfaði síðan í rúman áratug hjá indverskum stórfyrirtækjum á því sviði. Árið 2017 tók hann starfstilboði hjá Alvotech og flutti hingað til lands með fjölskyldu sína. Kathir hefur einnig náð góðum frama í starfi því hann tók í upphafi við deildarstjórastöðu hjá fyrirtæki en er nú aðstoðarforstjóri yfir lyfjaframleiðslunni. „Ég er virkilega ánægður, bæði í vinnu og einkalífi. Framleiðsludeildin hefur náð mjög góðum árangri og fyrir það er ég bæði stoltur og þakklátur. Ég hef kunnað því mjög vel að starfa þar og það er ánægjulegt hversu vel er hugsað um starfsfólk hér á landi. Þannig að ég er mjög ánægður að hafa fengið hér vinnu og lífsgæðin hér eru mun meiri en á Indlandi,“ segir Kathir.

„Hún er farin að tala góða íslensku og er þegar búin að tilkynna okkur það að héðan mun hún ekki vilja flytja enda mjög ánægð.“

Hefur þroskast

Fyrstu tvö árin hjá Alvotec var Kathir hluti af fámennum hópi Indverja hjá fyrirtækinu en nú eru Indverjarnir sem þar starfa orðnir yfir 40 talsins. „Það hefur auðvitað haft jákvæð félagsleg áhrif því þessi stóri hópur er mér beintengdur og þau hafa öll komið hingað því við höfum talað svo vel um Ísland. Þá hefur þetta líka haft jákvæð félagsleg áhrif fyrir konuna mína og hún hefur getað hjálpað konunum að koma sér fyrir hér. Allur hópurinn er mjög ánægður hér og ég er sannfærður um að flestir úr hópnum komi til með að vilja vera hér áfram til framtíðar,“ segir Kathir.

- Auglýsing -

„Eftir því sem fyrirtækið fer stækkandi gæti Indverjunum hér fjölgað. Það er mjög ánægjulegt að búa á Íslandi. Það er pínu kalt þar sem veðrið breytist mjög hratt en hér er samt mjög gott að búa. Eftir að ég kom hingað hef ég bæði þroskast mjög á mínu atvinnusviði en ég hef líka þroskast sem fjölskyldufaðir.“

Í lykilhlutverki

Kathir er í hópi hámenntaðra vísindamanna líftæknifyrirtækisins sem er með fjölda líftæknilyfja í þróun og stefnir á að koma fyrsta lyfinu á markað á næsta ári. Þar gegnir hann lykilhlutverki og því hefur hann hvorki haft mikinn tíma til tómstunda né íslenskunáms. „Ég æfi tennis reglulega og spila einnig krikket sem var alveg yndislegt fyrir mig að komast í. Íslendingar eru kannski ekki á alþjóðlegu stigi í krikket en ég hef náð að kenna þeim aðeins,“ segir hann brosandi.

Eftir að hafa lokið grunnámi í heimavistarskólum lauk Kathiravan framhaldsnámi í líftækni og starfaði síðan í rúman áratug hjá indverskum stórfyrirtækjum á því sviði. Árið 2017 tók hann starfstilboði hjá Alvotech og flutti hingað til lands með fjölskyldu sína. Mynd / Hákon Davíð

„Í hreinskilni sagt hef ég ekki haft nógu mikinn tíma til að læra íslenskuna en ég er með það markmið að bæta þar úr því eftir nokkur ár stefni ég á að sækja um ríkisborgararétt. Mig langar til að verða Íslendingur. Við höfum aðlagast vel, það er bara maturinn sem við höfum haldið í þar sem við eldum áfram indverskan mat og erum svo heppin að fá hér allt hráefni.“

Ekki mætt fordómum

Aðspurður hvort hann hafi orðið fyrir aðkasti eða athugasemdum á Íslandi vegna uppruna síns segir hann svo ekki vera. „Alveg frá upphafi hef ég fundið fyrir því að vera velkominn hér. Ég hef núna verið hér í þrjú ár og hef ekki lent í neinu slíku tilviki þrátt fyrir dökkan húðlit minn. Það hef ég heldur ekki heyrt frá neinum af mínum samstarfsmönnum. Þess vegna erum við enn þakklátari fyrir að vera hér,“ segir Kathir.

„Þegar við fluttum hingað þá var breytingin fyrir okkur mjög mikil. Þetta eru gjörólíkir menningarheimar. Á Indlandi er líka mjög heitt en hér er kalt og miklar breytingar á birtuskilyrðum eftir árstíðum. En ég er sem betur fer ekki hræddur við myrkrið og við hjónin völdum það frá upphafi að láta veðrið ekki trufla okkar tilfinningalíf. Þess vegna vorum við heldur ekki kvíðin fyrir flutningnum þar sem við lítum hann bara jákvæðum augum. Hér er allt svo hreint og ferskt, til dæmis vatnið, og manni finnst heilsusamlegt að búa hér. Fólkið er líka mjög almennilegt. Fyrir utan fjölskylduna á Indlandi þá er ekkert sem við söknum þaðan.“

Lestu viðtal við Kathir í Mannlíf.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -