Miðvikudagur 27. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

„Sá Björgólfur Thor sem ég þekkti var frábær vinnukraftur og málaði stórkostlegar beinar línur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi stóð fyrir flöskutombólum í barnskóla og bauð vinum sínum reglulega upp á pylsu og kók fyrir ágóðann. Átta ára gamall byrjaði Guðmundur að vinna sér inn fyrir kaupi og hugurinn stefndi fljótt á verðbréfasölu á Wall Street. Lengi átti hann erfitt með að búa á Íslandi en með aldrinum hefur hann lært að meta það smáa.

„Sem unglingur átti hann framtíðina fyrir sér í bílastæðamálun en beygði eitthvað af beinu brautinni þegar fram liðu stundir“

Þegar Guðmundur var ungur tók hann að sér að mála bílastæði og hjá honum starfaði þá Björgólfur Thor Björgólfsson, sem í dag er líklega ríkasti maður landsins. Aðspurður segir forsetaframbjóðandinn að Björgólfur Thor hafi verið góður undirmaður. „Sá Björgólfur Thor sem ég þekkti var frábær vinnukraftur og málaði stórkostlegar beinar línur. Sem unglingur átti hann framtíðina fyrir sér í bílastæðamálun en beygði eitthvað af beinu brautinni þegar fram liðu stundir,“ segir Guðmundur og brosir út í annað.

Síðar meir lágu leiðir Guðmundar og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra saman er sá síðarnefndi starfaði fyrir hann sem lögmaður. „Sá Bjarni sem ég kynntist var mjög vandaður piltur og það var gott að vinna með honum. Okkar samskipti voru ánægjuleg en hann er ekki fullkominn frekar en aðrir og hef ég orðið fyrir töluverðum vonbrigðum með sum störf hans.“

Lestu viðtal við verðbréfasalann sem vill verða forseti í Mannlífi sem kom út í dag.

Lesa Mannlíf

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -