Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Ungir menn spörkuðu í höfuð drukkins eldri borgara – 200 ungmenni við drykkju inni á heimilinu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ómenni réðust á eldri mann í miðborginni. Tveir ungir menn börðu eldri mann sem var ölvaður. Þeir felldu hann í götuna og sáu vitni hann sparka í hann liggjandi. Meðal annars í höfuð hans. Lögreglumenn náðu með snarræði að handtaka annan fantinn og hvílir hann nú í fangaklefa og bíður þess að honum verði ákvörðuð refsing. Fórnarlambið var flutt á Bráðadeild.

Aðkoma húsráðanda í Kópavogi var slæm þegar hann kom heim. Unglingapartý hafði verið haldið á heimilinu. Þangað streymdu um 200 ungmenni með tilheyrandi umgengni. Þegar forráðamaður kom á vettvang yfirgáfu unglingarnir húsnæðið. Tómar áfengisumbúðir voru á víð og dreif.  Tilkynning um framferði og drykkju unga fólksinn var send til Barnaverndar.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -