Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Ódýrt bensín á Kanarí – Þú kæmist hringveginn fyrir 23 þúsund krónur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Benzín á Canary núna áðan 1.294 EUR eða 192.60 ISK,“ segir Engilbert Runólfsson á Facebook síðu sinni á dögunum. Þar vekur hann athygli á því hvort einhver ætli virkilega að halda því fram að eðlilegt bensínverð á Íslandi sé um 320 til 330 krónur. Einnig nefnir hann að Canary sé eyja eins og Ísland og þar af leiðandi er flutningskostnaður inn í þessu verði.

Það er tæplega 70 prósent verðmunur á bensíni á Íslandi og Kanaríeyjum. Ef þú keyrir hringveginn sirka 1500 kílómetra á bensín bíl og miðar við að eyða átta lítrum á hundraði þá kostar það þig tæplega 40.000 krónur hér á Íslandi. En ef þú keyrir sömu vegalengd á Kanaríeyjum kostar það þig 23.000 krónur.
Ódýrasta bensínverðið í dag er hjá Orkunni. Þar kostar líterinn 296,7 krónur en dýrastur er líterinn hjá N1, 324,7 krónur. Þú getur alltaf séð nýjasta bensínverðið  á bensinverd.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -