Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

3800 nemendur skráðir í sumarnám háskólanna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslenskir háskólar bjóða upp á fjölbreytt sumarnám í sumar og fer skráning í námið afar vel af stað, en samkvæmt vef Stjórnarráðsins hafa rúmlega 3800 nemendur skráð sig í sumarnám hjá háskólunum sjö. Enn er opið fyrir umsóknir og því má ætla að þeim fjölgi.

Fjöldi framhaldsskóla býður einnig upp á sumarnám.

Á háskólastigi eru yfir 200 námsleiðir á öllum fagsviðum í boði. Flest námskeiðanna eru einingabær eða nýtast til frekara náms. Þær námsleiðir henta meðal annars nemendum sem ljúka námi úr framhaldsskóla og vilja sækja undirbúningsnám fyrir háskólanám, öðrum framtíðar háskólanemum, núverandi háskólanemum, sem og einstaklingum sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, brúa færnibil eða skipta um starfsvettvang.

Lengd sumarnámskeiðanna er frá einni og upp í 10 vikur og er bæði stað- og fjarnám í boði og er skráningagjöldum haldið í lágmarki.

„Þetta eru gleðifréttir! Markmið stjórnvalda er að efla menntun og virkni í samfélaginu og aðgerðir í þá veru vegna COVID-19 skila góðum árangri. 800 milljónum kr. er varið til að fjölga námskostum í framhalds- og háskólum og framboðið er virkilega spennandi. Ég tel að snör viðbrögð Lánasjóðs íslenskra námsmanna hafi einnig hjálpað en lágmarksframvindukrafan fyrir sumarnámið er einungis ein eining,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur brugðist við áhrifum COVID-19 með margvíslegum aðgerðum til hagsbóta fyrir námsmenn, meðal annars með því að rýmka reglur um mat á undanþágum og lengja umsóknafresti. Umsóknarfrestur vegna lána fyrir sumarnámi er til 15. júlí.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -