Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

39 börn föðurlaus þegar togarinn Júlí fórst í hræðilegu veðri: „Það ríkti dauðaþögn á bryggjunni“

Á dögunum 8. til 9. febrúar árið 1959 gerðist eitt hörmulegasta sjóslys í útgerðar­sögu Íslendinga, en þá fórst togarinn Júlí, frá Hafnar­firði, á Nýfunda­landsmiðum og með honum þrjátíu menn í miklu ísingar­veðri. Ekki mátti miklu muna að slysin yrðu fleiri því öðrum íslenskum togurum var mikil hætta búin í þessu veðri. Þorkell Máni úr Reykjavík var nærri því sokkinn og að minnsta kosti fjögur önnur íslensk skip lentu í vandræðum; Júní, einnig frá Hafnar­firði, sem og Bjarni riddari. Líka Mars úr Reykjavík og Norð­lendingur frá Ólafs­firði.

Allir voru þetta síðu­togarar; kallaðir Nýsköpunar­togarar, sem keyptir voru til landsins að lokinni síðari heim­styrjöldinni.

Í febrúar árið 1959 voru þessi skip stödd í mjög köldum sjó; yfir­borshitinn um eða undir frost­marki og á sama tíma er einnig loftkuldi og særok; fá á sig ísingu á yfir­byggingu skipsins.  Hleðsla ísingar dregur snögglega úr stöðug­leika og sjóhæfni.

Nýsköpunar­togararnir voru afar fengsæl fiskiskip en þóttu ekki sérlega vel hannaðir og útfærðir með tilliti til ísingar­hættu; á þeim voru rekkverk, vírar og fleira sem á hlóðst ís í vondum vetrar­veðrum.

Í frétt Morgun­blaðsins 18. febrúar segir svo:

Í gær tilkynnti Bæjar­útgerð Hafnar­fjarðar, að togarinn Júlí væri talinn af með allri áhöfn, 30 mönnum. Leit er nú hætt að togaranum, en hún hófst að morgni 10. þessa mánaðar og í tilkynningu Bæjar­útgerðarinnar segir, að viðstöðu­laust hafi síðan verið leitað með flugvélum og skipum á meir en 70,000 fersjómílna svæði. Fjöldi flugvéla hafði tekið þátt í leitinni að Júlí, björgunar­flugvélar frá Kanada, Banda­ríkjunum, Nýfundnalandi og héðan frá íslandi, svo og bandarískar flota­flugvélar. Á sjó leituðu veðurskip og stórir rússneskir verksmiðju­togarar. Auk hins fyrr­greinda leitar­svæðis á Nýfundnalands­miðum var og leitað á stóru aðliggjandi svæði sunnar. Allur þorri skips­manna á Júlí voru ungir menn, yngsti maðurinn aðeins 16 ára, en hinn elzti 48 ára. Flestir á aldrinum milli tvítugs og þrítugs. Af þeim voru nítján frá Reykjavík og fimm frá Hafnar­firði. Í hópnum voru 12 heimilis­feður, er láta eftir sig konur og börn. Með hvarfi togarans Júlí hafa 39 börn á aldrinum nokkra vikna til 15 ára misst feður sína. Þetta er eitt hið mesta sjóslys, sem orðið hefur á íslenzku skipi á þessari öld, en fleiri fórust þó í hinu svonefnda Þormóðsslysi 1943, er 31 maður drukknað í Hala­veðrinu 1925, er tveir togarar fórust, drukknuðu 68 menn, og með togaranum Hiium Max Pemberton, er hvarf árið 1944, fórust 29 menn.

Togarinn Júlí.

Öll áhöfn Júlí hvarf í kalt hafið sem skilar engu til baka sem það nær tökum á, en sem betur fer, þótt þessi atburður hafi verið hryllilegur í alla staði, fórust ekki fleiri, en eins og áður sagði munaði litlu að svo færist – sérstak­lega hjá togaranum Þorkatli Mána; en allt fór betur en á horfði.

Eftir­lifendur áhafnar Þorkatlar Mána komu saman á sínum tíma til að rifja upp þennan erfiða atburð og annað markvert af skipinu.  Morgun­blaðið ræddi við Skúla Ólafsson, sem var einungis átján ára háseti í sjóferðinni örlaga­ríku. Hann segir svo frá að það hafi verið mögnuð stund þegar Þorkell Máni kom í land eftir þessa hættuför, en þá var enn ís á bátþilfarinu.

Þorkell Máni.

„Við komum um klukkan hálfþrjú um nóttina og bryggjan var full af fólki.  Og það ríkti dauðaþögn á bryggjunni og þetta var ótrúleg stemming.  Það var ekki að undra því að togarinn Júlí hafði farist með allri áhöfn og þá fórust fleiri togarar, en ekki íslenskir á sömu slóðum.“

Febrúar árið 1959 var mikill sjóslysa­mánuður og sjaldan hafa farist eins margir Íslendingar í einum mánuði og þá; mögulega fleiri en í þeim hræðilega mánuði október árið 1995 þar sem snjó­flóðin féllu á Flateyri og mörg slys urðu líka víða á landinu með miklum kostnaði mannslífa.

Hermóður.

Árið 1959 í febrúar voru samgöngu­truflanir miklar og rafmagns­bilanir tíðar; storm­dagar voru margir. Vita­skipið Hermóður fórst undan Höfnum á Reykjanesi 18. febrúar í stormi og stórsjó og með honum öll áhöfn eða átján manns.

Þarna sem togararnir áður­nefndu voru var algjört mann­drápsveður og veður­hæðin nokkru meiri á miðunum, en frostið kannski ekki jafnhart.  Erfitt er að ímynda sér erfiðari aðstæður og meiri ísingar­hættu en þarna í þessu hryllilega veðri sem tók líf þrjátíu Íslendinga, flestir voru frá Reykjavík og margir af þeim ungir menn. Sá yngsti aðeins sextán ára gamall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim