Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Afkomuviðvörun og örvænting hjá Sýn – Rætt um að loka útvarpsstöðvum og breyta nafni Stöðvar 2

Afkomuviðvörun og örvænting hjá Sýn – Rætt um að loka útvarpsstöðvum og breyta nafni Stöðvar 2
Herdís Fjeld­sted. Mynd: Sýn.

Ákveðin örvænt­ing er ríkj­andi innan Sýnar eftir að komið er á dag­inn að afkoman er mun verri en Herdís Fjeld­sted for­stjóri og stjórn félags­ins hafði haldið fram. Félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun í gær þar sem tíundað er að sala aug­lýs­inga sé undir mark­miðum og áskrifta­sala hafi brugð­ist. Þá er elds­voða kennt um verri fjár­hag. .

Gert er ráð fyrir að rekstrar­hagn­aður félags­ins fyrir árið 2024 verði um 700 millj­ónir króna, sem er langt undir áður út­gefnum spám. Fyrri áætl­anir félags­ins gerðu ráð fyrir að á bil­inu 900 til 1.100 millj­ónir króna.

Stöð 2 hefur fylgt þjóð­inni lengi. Rætt er um nafn­breyt­ingu.

Sam­kvæmt Kaup­hallar­til­kynn­ingu Sýnar koma þessi frá­vik til vegna veru­legrar lækk­unar aug­lýs­inga­tekna, sam­dráttar í áskriftar­tekjum sjón­varps, minni eign­færslna á launa­kostn­aði og óvæntu tjóni vegna elds­voða sem hafði veru­leg áhrif á rekstur félags­ins.

Flótti lyk­il­fólks frá félag­inu hefur verið mik­ill und­an­farið. Flóttinn snýst að miklu leyti um óánægju með stjórn­tök Herdísar og meinta vina­væð­ingu.

Hákon Stef­áns­son, stjórn­ar­for­maður Sýnar.

Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um útstandið innan Sýnar og þann brest í tekjum sem nú hefur verið við­ur­kenndur. Herdís hefur ekki svarapð spurn­ingum Mannlífs en sendi bréf til starfs­fólks þar sem hún hélt því fram að allt væri í jafn­vægi hjá fyr­ir­tæk­inu. Þá hefur stjórn­ar­for­maður Sýnar, Hákon Stef­ánssson, lýst því yfir að for­stjór­inn njóti fulls trausts. Það traust nær aðeins til stjórnar en ekki til stórra hlut­hafa sem teknir eru að ókyrr­ast.

Heim­ildir Mannlífs herma að innan félags­ins sé ákveðið ráða­leysi og ákaft leitað leiða til að snúa við óheilla­þró­un­inni. Kvisast hefur út að til standi að breyta nafni og vöru­merki Stöðvar.

„Við fengum þær fréttir á göng­unum að það ætti að fara í rebr­and­ing á félag­inu,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs sem vill ekki koma fram undir nafni af ótta við að vera rek­inn. Þá er full­yrt að til skoð­unar sé að loka tveimur útvarps­stöðvum, FM957 og X977 sem báðar hafi verið reknar með tapi. Þetta er þó ekki stað­fest.

End­an­legt upp­gjör Sýnar verður birt 20 febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ