Fimmtudagur 18. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Ágúst 2022: „Sjáðu Satúrnus frá jörðu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Um þessar mundir er Satúrnus bæði tiltölulega nálægt jörðu og vel upplýstur af sólskini. Þessi skilyrði gefa okkur besta tækifæri ársins til að skoða þessa fjarlægu plánetu, tungl hennar og hina frægu hringi, samkvæmt Space.com.

Hvernig er hægt að sjá plánetuna?

  • Farðu út á milli hálftvö og tvö að nóttu til upp úr miðjum ágúst.
  • Satúrnus var í hásuðri kl. 01:33 aðfaranótt 15. ágúst en færist örlítið vestar eftir því sem líður á mánuðinn. Hann stendur þó talsvert lægra á himni en sýnt er á þessari mynd (sem miðast við nokkuð suðlægari breiddargráðu), eða um 11° yfir sjóndeildarhring.
  • Satúrnus sést áfram þótt ágúst líði og verður t.d. um 10° yfir sjóndeildarhring í hásuðri laust fyrir klukkan hálftólf að kvöldi 15. september, en þá ekki jafn vel upplýstur af sólinni og nú.
  • Svo er auðvitað upplagt að nýta tækifærið og skoða Júpíter líka. Hann er töluvert austar á himni og rís mun hærra, sést beint í austri (4°) þegar myrkvar en fer í nærri 30° gráðu hæð í hásuðri laust fyrir birtingu eftir miðjan ágúst. Júpíter sést líka ágætlega í september, samkvæmt Lifandi Vísindum.

Hvernig get ég séð tunglin?

  • Með handkíki geturðu séð aflanga lögun Satúrnusar og mögulega líka tunglið Títan, rétt undir plánetunni. Með stærri sjónauka sérðu fleiri tungl kringum Satúrnus.

Hvernig sjást hringirnir?

  • Með litlum stjörnusjónauka má líka sjá hringi Satúrnusar greinilega. Í stærri sjónauka sést hvernig skífan skiptist í fleiri hringi. Hringirnir eru mestanpart úr ísbrotum sem allt frá einum sentimetra upp í 10 metra í þvermál.

 

Hér má fylgjast með plánetunni í beinu streymi í kvöld:

Önnur stærsta pláneta sólkerfisins, Satúrnus, er einmitt núna í beinni línu frá sólinni og að jörðinni.

Það þýðir þýðir að þessi stóra pláneta er tiltölulega nálægt okkur þó svo að fjarlægðin sé samt meira en milljarður kílómetra. Eins og staðan er í dag, lýsir sólin upp þá hlið sem að okkur snýr. Þegar þessar tvær breytur eru til staðar, gefst mjög gott tækifæri til að skoða plánetuna Satúrnus.

- Auglýsing -
Hvernig mynduðust hringirnir?

Rannsóknir geimfarsins Cassini sem gerðar voru árunum 2004 – 2017 leiddu í ljós að hinir einkennandi hringir Satúrnusar gætu hafa myndast ekki fyrir svo löngu síðan, eða fyrir um 100 milljón árum.

Eitt af tunglum Satúrnusar gæti hafa orðið fyrir loftsteini eða halastjörnu og áreksturinn valdið því að hvort tveggja hafi tæst í sundur.

Brotin hafa þá dreifst út í breitt belti kringum plánetuna. Síðan hafa nýir árekstrar sundrað brotunum enn meira.

- Auglýsing -

Leifar efnisins hafa síðan smám saman myndað þessa þunnu hringi smásteina og ísbrota sem nú mynda hringina.

 

 

Viðvörun: Athuga vel veðurskilyrði, vera vel búin og horfa upp frá símanum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -