Miðvikudagur 17. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Allir velkomnir að vera berir að ofan í Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mikið er búið að endurbæta aðstöðuna í einni fallegustu sundlaug landsins, Krossneslaug í Árneshreppi á Ströndum. Þar er komin ný afgreiðsla meðal annars og myndavélar sem hægt er að fylgjast með því sem er að gerast í lauginni.

 

Krossneslaug er á ákaflega fallegum stað. Mynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

 

 

Sigrún Sverrisdóttir og maður hennar   sjá um rekstur Krossneslaugar. Sigrún segir í viðtali hjá Strandir.is: „Við erum vön ýmsu hér en eins og flestir vita vorum við með afgreiðsluna hér utan fyrir í hvíta tjaldinu þannig að við erum enn þá að venjast þessu,“ og bætir við „Það er búið að taka húsnæðið alveg í gegn. Þegar við byrjuðum kom í ljós að mun meiri viðgerða var þörf.“ Hún segir laugina í dag vera blanda af sveitalaug með mjög takmarkaðri þjónustu og hefðbundinnar sundlaugar. Endurnýjun er ekki alveg lokið, enn á eftir að koma gamla pottinum fyrir á öðrum stað austan megin við laugina og nýjum heitum potti hinum megin við. Stefnt er að því að annar potturinn verði kominn upp eftir helgi. „Við fengum jafnframt styrk til að koma upp söguskilti á sundlaugarhúsinu og kort af svæðinu á bústaðinn“.

 

- Auglýsing -
Sigrún Sverrisdóttir og dóttir hennar í lauginni. Mynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

 

Sigrún og fjölskylda búa í sumarbústað á svæðinu yfir sumartímann og reka eins og áður sagði sundlaugina. Nýverið opnaði laugin á ný eftir þær miklu breytingar sem hafa átt sér stað og segir Sigrún að traffíkin sé svipuð og í fyrra hjá þeim.

 

- Auglýsing -
Svona mun laugarsvæðið líta út þegar öllum framkvæmdum er lokið. Teikning: GM teiknistofa

 

Sigrún er spurð vegna mikillar umræðu upp á síðkastið er tengist Sky Lagoon og því konur hafi frelsi til þess að vera berar að ofan ef þær kjósa það, hvort það sé leyfilegt í Krossneslaug. Sigrún svarar án hiks: „Það er alveg sjálfsagt mál að vera ber að ofan í lauginni!“.

 

Laugin er opin alla daga frá klukkan 7:00 til 23:00. Mynd: Skjáskot af Strandir.is

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -