Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, lýsir yfir hættustigi almannavarna vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir á Reykjanesi. Frá þessu er grein í fréttatilkynningu.
Þar segir að hættustigið eigi ekki að hafa áhrif á almenning en það sé sett tá ef ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.
Í fréttatilkynningu er farið yfir atburðarrás dagsins: „Skjálfti af stærð 5.7 mældist um 3.3 km SSV af Keili á Reykjanesi kl. 10:05. Upptök skjálftanna eru á um 20 km. kafla frá Grindavíkurvegi að Kleifarvatni. Fjöldi eftirskjálfta hefur fylgt og hefur sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofu Íslands numið alls 12 skjálfta yfir 4 að stærð frá því hrinan hófst. Síðasti skjálfti mældist 4.8 að stærð kl. 12:37. Skjálftarnir hafa fundist víða á Suðvesturhorninu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð.“
Varað er sérstaklega við grjóthruni á Reykjanesskaga á meðan á hrinunni stendur. Ekkert bendi til gorsóróa á svæðinu. „Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með í samvinnu við lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands. Lögreglan á Suðurnesjum fer núna um svæðið til að kanna áhrif skjálftans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið yfir Reykjanes til að kanna aðstæður. Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykjanesi og hvítir gufustrókar á jarðhitasvæðum hafa sést á svæðinu,“ segir í tilkynningu.
Almannavarnir hvetja fólk til að kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta sem nálgast má hér.