Grínistinn geðþekki, Ari Eldjárn, virðist vera nýjasta andlit svikamyllu sem flestir landsmenn hafa orðið vitni af á Facebook. Nú stendur yfir svikaherferð þar sem hann Ari er sagður hafa ljóstrað upp leyndarmálinu við að verða ríkur. Yfirleitt hafa auðmenn, sérstaklega Ólafur Jóhann Ólafsson, verið notaðir í þessum tilgangi.
Stefán Pálsson sagnfræðingur veltir því fyrir sér hvort þetta megi túlka sem hrós. „Neisko, scamið á internetinu sem þykist ætla að kenna öllum að verða ríkir virðist hætt að notast við Ólaf Jóhann Ólafsson og hefur skipt honum út fyrir Ara Eldjárn. Ég átta mig ekki á því hvort Ari eigi að vera pirraður eða smá upp með sér,“ skrifar Stefán.
Ari svarar honum í athugasemd og segir þetta ekki í fyrsta skiptið sem ódámar misnota nafn hans. „Þetta er nota bene í þriðja skipti sem svona scam- herferð fer í gang: sú fyrsta var 2019 og fjallaði um að ég hefði ljóstrað upp um leyndarmál í þættinum “Með Loga” og að bankarnir óttuðust að Eldjárn myndi kenna öllum að græða peninga. Best fannst mér þó lýsingin á mér: „Leikarinn, athafnamaðurinn og kraftakarlinn Ari Eldjárn” (sama scam hafði áður gengið um Hafþór Júlíus).“