Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ari myrti tvö börn: „Mun alltaf þurfa að lifa með því sem ég gerði“

Á sumar­mánuðum árið 1989 lést sjö ára drengur, Bjarmar Smári Elíasson, þegar hann drukknaði í Glerá. Var talið að um slys væri að ræða. Tæpu ári síðar drukknaði annar sjö ára drengur, Hartmann Hermannsson einnig í Glerá. „Ég kastaði upp, mér brá svo mikið. Þá vissi ég að Bjarmar hefði verið drepinn. Þetta gat ekki verið tilviljun,“ sagði Bjarnheiður Ragnars­dóttir, móðir Bjarmars síðar.

Lögreglan hóf fljótlega rannsókn og kom í ljós að gerandinn var einnig barn að aldri, aðeins ellefu ára gamall. Hann hafði drekkt drengjunum. Hann heitir Ari.

Morðin á Bjarmari og Hartmanni eru einhverjir þeir sorglegustu og óhugnanlegustu atburðir sem átt hafa sér stað á Íslandi í seinni tíð. Ekki var fjallað mikið um þessa atburði á sínum tíma, svo skelfi­legir þóttu þeir.

Ratleikur sem leiddi til dauða

Bjarmar fékk leyfi hjá móður sinni til að hjóla niður að Glerá ásamt tveimur eldri drengjum. Taldi móðir hans það vera öruggt þar sem eldri dren­girnir myndu hafa auga á Bjarmari. Hún sá drenginn sinn aldrei á lífi aftur. Sagan endurtók sig tæpu ári síðar. Sólveig Austfjörð Braga­dóttir fékk símtal frá skólanum. Hartmann, sjö ára sonur hennar, var týndur. Hún hóf strax leit en hann var hvergi að finna. Hann fannst drukknaður í Glerá.

Lát Harmanns þótti grundsamlegt og hóf lögregla rannsókn á báðum dauðsföllum. Það þótti vart geta verið tilviljun að sami drengurinn, Ari, hefði tvisvar orðið vitni að drukknun smádrengja af hreinni slysni. Ari var yfir­heyrður og viðurkenndi að bera ábyrgð á dauða Bjarmars og Hartmanns. Hafði hann búið til ratleik sem miðaði að því að koma drengjunum niður að ánni.

Enginn trúði Braga

Það sem sárast þótti var að ef til vill hefði verið unnt að koma í veg fyrir seinna morðið þar sem Bragi Bragason, skóla­félagi Ara, sagði lögreglu á sínum tíma að Ari hefði trúað honum fyrir því að hann hefði kastað dreng í Glerá. Bragi var hins stimplaður vandræða­piltur og tóku yfirvöld ekki mark á honum. „Það var bara hlegið að mér, ekki tekið mark á neinu sem ég sagði,” sagði Bragi síðar.

Fjöl­skyldur Bjarmars og Hartmanns gengu í gegnum skelfi­lega tíma í kjölfarið. Engin var áfalla­hjálpin eða sálfræði­aðstoðin á þessum tíma né var um fjárhags­aðstoð að ræða. Sólveig, móðir Hartmanns rifjaði það síðar upp að hún hefði þurft að jarðsetja sjö ára gamalt barn sitt án nokkurrar aðstoðar frá hinu opinbera. Bjarnheiður, móðir Bjarmars, var ekkja með einn annan dreng sem tók fráfall bróður síns afar nærri sér. Líf fjöl­skyldnanna var markað af sorginni og töldu þær að mun meiri áhersla hefði verið lögð á að vernda gerandann en fjöl­skyldur fórnar­lambanna.

Skelfieg barnæska

Það kom í ljós að Ari hafði átt skelfi­lega barnæsku, fulla af líkamlegu, andlegu og kynferðis­legu ofbeldi. Misnotkunin og ofbeldið hófst áður en Ari varð sjö ára. Eitt skiptið fanns hann að næturlagi, fáklæddur og ráfandi, talsvert fjarri heimili sínu. Aðspurður í viðtali mörgum árum síðar hvernig hafi staðið á því svaraði hann: „Ég hafði ekki kjark í mér til að fara heim af ótta við barsmíðar.“ Ástandið á heimili fjöl­skyldunnar var á margra vitorði en yfirvöld brugðust ekki við. Hann var aldrei fjar­lægður af heimilinu.

Áður hafði ofbeldis­hneigð hans gagnvart öðrum börnum ratað inn á borð lögreglu og Félagsmála­stofnunar. Ekki þótti ástæða til að grípa í taumana.

Kerfið var illa í stakk búið til að taka á móti Ara eftir morðin. Ekkert þessu líkt hafði nokkurn tíma koma komið inn á borð. Hann var sendur til Reykja­víkur og vistaður á barna­geðdeild Land­spítalans á Dalbraut í tvö og hálft ár. Hann líkti vistinni á Dalbraut við fangelsi. Eftir það var honum komið fyrir á nýstofnuðu vist­heimili, Árbót í Aðaldal, skammt frá Húsavík. Heimilinu var sérstak­lega komið á fót til að vista Ara. Var heimilið nokkuð einangrað en þrír kíló­metrar voru til næsta bæjar. Þar dvaldi hann til 18 ára aldurs. Að því loknu fór hann aftur út í samfélagið. Það var mæðrunum erfitt, ekki síst að sjá hann í vinsælum íslenskum stefnumóta­þætti nokkrum árum síðar.

„Ég drap tvö börn“

„Að hafa tvö líf á samviskunni er mjög erfitt. Það er ekki hægt að lýsa því. Hver sem er náinn mér eða í nánu sambandi við mig þarf að vita sögu mína. Þú getur ímyndað þér hvernig það er fyrir mig að segja fólki sem ég elska að ég hafi drepið börn.“

Í viðtalinu við Pressuna árið 2015 sagðist Ari ekki hafa brotið af sér eftir að hann hélt út í lífið að nýju en fortíðin fylgir honum hvert skref. Hann flutti til Banda­ríkjanna í kringum árið 2002. Frá árinu 2008 til 2014 stundaði hann nám sem miðaði að því að aðstoða fólk sem hefur lent í ýmsum áföllum í lífinu, meðal annars heimilis- og kynferðis­ofbeldi. Sagði hann námið hafa hjálpað honum að takast á við fortíð sína.

„Reyni að fyrirgefa sjálfum mér“

„Ég hugsa mjög oft til drengjanna og þess sem ég gerði. Í hvert sinn sem ég les um eða heyri í fréttum að barn hafi látist fæ ég sting í magann,“ sagði Ari og bætti við: „Ég hugsa um þá í hvert skipti sem einhver talar um móðurást. Það versta sem getur gerst í lífinu er að missa barn, og þegar ég heyri af dauðsföllum, þá kemur þessi sára minning upp í hugann. Þetta gerist nánast hvern einasta dag. Oft vildi ég að foreldrarnir og fjöl­skyldurnar fyrirgæfu mér og ég gæti fundið leið til að fyrirgefa sjálfum mér. En hvernig get ég ætlast til þess þegar ég get ekki ímyndað mér þann sársauka sem ég olli þeim. Ég hugsa stundum hvort ég muni eignast börn, en partur af mér er hræddur við að ég verði fyrir sömu lífs­reynslu.“

„Mér finnst ég eiga skilið að upplifa sömu sorg, þess vegna vil ég ekki eiga börn

Ég vona að sá tími komi að allir þeir sem ég olli sársauka fyrirgefi mér. Og að sá dagur renni upp að mér takist að fyrirgefa sjálfum mér,“ sagði Ari og bætti við: „Ég mun alltaf þurfa að lifa með því sem ég gerði. Það er mín refsing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim