Arnar Grétarsson, þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu, var gestur í þættinum 433.is sem var á dagskrá sjónvarpsstöðvar Hringbrautar í gærkvöldi. Fór Arnar þar yfir hin ýmsu mál en athygli vakti þegar hann gagnrýndi Akureyrarbæ nokkuð harkalega.
„Það sem er ekki að hjálpa KA er æfingaaðstaðan sem þarf að vera betri ef við ætlum að bera okkur saman við lið á borð við Víking R. og Breiðablik. Þessi lið sem eru með topp aðstöðu og geta æft á sínum keppnisvelli nánast allt árið um kring, það er bara erfitt að keppa við það með okkar aðstöðu,“ segir Arnar, þjálfari KA.
Liðið neyddist til að spila fyrstu heimaleiki sína á gervigrasvellinum á Dalvík því heimavöllur liðsins var ekki tilbúinn eftir veturinn.
„Ég held að við höfum spilað fyrsta leik á Greifavellinum í kringum 20. júlí, þá erum við varla búnir að æfa á vellinum. Við erum lið sem spilar á grasvelli en erum samt ekki með æfingasvæði til að æfa á. Æfingaaðstaðan hjá KA er lítill grasbali við hliðina á Greifavellinum sem er ekki sléttur en samt langbesta æfingasvæðið okkar.“
Arnari þykir þetta grátlegt og segir iðkendur félagsins eiga betur skilið.
„Ég veit að KA fólk er að berjast fyrir því að reyna fá nýtt svæði í gegn. Félagið er með eitt stærsta mót yngri flokka, N1 mótið, sem dregur að sér fjölda fólks í bæinn og afleiddar tekjur af mótinu eru gígantískar. Framboðið af öðrum mótum fer sístækkandi og ef aðstaðan er ekki betri en þetta þá veit maður ekki hvað gerist.
Manni finnst það mjög súrt að þessir yfir 700 iðkendur hjá KA þurfi að búa við þessa aðstöðu sem er ekki boðleg. Þetta er stórt bæjarfélag og mér finnst það sorglegt hvað bæjaryfirvöld eru að draga lappirnar fram og til baka í þessu máli vegna þess að við búum til dæmis við allt aðrar aðstæður á veturna fyrir norðan heldur en hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Arnar Grétarsson, þjálfari KA.