Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Ásta stofnaði staðinn sem braut lög – Sver af sér aðkomu að COVID-dansleiknum í nótt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingkona Pírata, sver af sér aðkomu að dansleik sem lögreglan þurfti að stöðva í nótt þar sem fjöldi fólks er talið hafa brotið sóttvarnarlög og áfengislög.

Umræddur staður er Forsetinn á Laugavegi en lögreglan þurfti að stöðva samkvæmið. Nánar tiltekið hafði fólk keypt áfengi á Forsetanum en flutt með sér á dansæfingu í húsnæði hliðin á staðnum.

Áður hefur verið greint frá því að Ásta væri einn eigandi og stofnenda staðarins. Hún kom í fjölda fjölmiðla og kynnti staðinn undir þeim formerkjum.  Á Facebook virðist hún sjá í hvað stefndi og skrifar:

„Af gefnu tilefni og án þess að vilja fara í einhverjar nánari útskýringar, þá er kannski gott að það komi fram að ég hef ekki komið nálægt rekstri Forsetans síðan í haust.“

Í samtali við Mannlíf leggur hún áherslu á að hún hafi ekkert komið nálægt rekstrinum en vildi ekki vísa blaðamanni á núverandi rekstraraðila. Hún hafnar því að hafa átt staðinn en í eldri viðtölum þegar staðurinn var kynntur til leiks kemur fram að hún hafi stofnað staðinn ásamt föður sínum. Hver sá sem á staðinn mun verða kærður fyrir brot á áfengislögum fyrir að selja áfengi út af staðnum yfir í salinn við hliðina á.

„Nei. Ég hef aldrei átt þennan stað eða þessar kennitölur eða neitt þannig,“ segir Ásta.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -