Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Átrúnaðargoð Þorvaldar Bjarna hringdi í hann með óvænt erindi: „Ég hélt þetta væri scam“

Þor­valdur Bjarni Þor­valds­son, tón­skáld með meiru, segir ein­hver lög um aðdrátt­ar­aflið hljóti að hafa átt sér stað þegar átrún­aðar goðið hans hringdi í hann og vildi fá hann í sam­starf.

Þor­valdur var við­mæl­andi hlað­varps­þátt­ar­inns 10 bestu fyrir skemmstu og segir frá þess­ari ótrú­legu lífs­reynslu sinni.

„Hann er að browsa eitt­hvað á inter­net­inu og ég hafði sett tón­list sem ég var að gera fyrir Astrópíu kvik­mynd­ina, hafði skellt henni út eftir að myndin kom út og það lá bara þarna. Svo eina nótt­ina sé ég á sím­anum mínum eitt­hvað amer­ískt númer hringir alveg bara aftur og aftur og aftur. Ég hélt þetta væri scam eða eitt­hvað svo­leiðis.“

Þor­valdur ákvað þó að hringja til baka og seg­ist hann hafa kiknað í hnjánum þegar hann heyrði hver var á hinni lín­unni.

Það var átrún­að­ar­goð hans, Jon Anderson, úr rokk­hljóm­sveit­inni Yes. En margir kann­ast eflaust við smell­inn þeirra Owner of a Lonely Heart.

„Hvernig hann hefur fengið sím­ann minn skil ég ekki, hvort hann hafi bara farið inn á já.is,“ segir Þor­valdur og skelli­hlær.

„Svo eina nótt­ina sé ég á sím­anum mínum eitt­hvað amer­ískt númer hringir alveg bara aftur og aftur og aftur“

Jon var að leita að aðila til að setja sína tón­list í sin­fónískt form og rambaði inn á verk eftir Þorvald, sem honum leist svona vel á að hann ákvað að hafa upp á honum.

Jon sendi Þorvaldi tón­list­ar­bút og biður hann að gera útsetn­ingu á því. Svo heppi­lega vildi til að á þeim tíma var Þor­valdur staddur í Búlgaríu við upp­tökur þar sem hann var með 80 manna sin­fón­íu­hljóm­sveit og 40 manna kór. Þor­valdur nýtti tæki­færið og skrif­aði upp útsetn­ingu af efn­inu sem Jon sendi honum og tók það þarna upp ásamt fríðu föru­neyti sínu. „Maðurinn nátt­úru­lega bara missti and­litið,“ segir Þor­valdur um við­brögð Jons við upp­tök­unum og heldur áfram: „Þá var komin upp sú staða að hann lang­aði að við myndum semja saman og við stefndum á að hitt­ast 2008 í Toscana á Ítalíu, ég var meira að segja búinn að leigja hús fyrir okkur.“

En því miður varð ekk­ert úr því segir Þor­valdur, þar sem Jon varð alvar­lega veikur: „Hann veikt­ist heift­ar­lega, hann skildi við og var lífg­aður aftur við svo ekki varð úr því, en við héldum sam­bandi.

Ári seinna var Þor­valdur staddur í Los Angeles að vinna og ákveður hann að senda Jon línu um hvort þeir eigi ekki að hitt­ast.

Ekki stendur á svörum, Jon svarar ját­andi og lætur heim­il­is­fang sitt fylgja.

Þor­valdur segir frá því hvernig hann leigði sér bíl og keyrði upp í hæð­irnar í Hollywood að heim­ili Jons, „…og þar var hann mættur, nývakn­aður og allur úfinn. Þar hitt­umst við í fyrsta skiptið,“ segir Þor­valdur og skellir upp úr, auð­heyr­an­legt að hann trúir varla enn að þetta hafi átt sér stað.

Þeir félag­arnir drukku te saman og ræddu málin og vildu gjarnan vinna saman.

Úr varð að Tod­mobile, hljóm­sveit Þor­valdar, réði 20 hljóð­færa­leik­ara, kór og fleiri til liðs við sig og byrj­uðu að útsetja lög hljóm­sveit­ar­innar Yes.

Þetta verk­efni end­aði með glæsi­legum tón­leikum á Íslandi, árið 2013 með söngv­ar­anum Jon Anderson í broddi fylk­ingar og segir Þor­valdur hann stundum þurfa klípa sig til að átta sig á að þetta hafi í raun og veru gerst.

Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára