Fimmtudagur 25. apríl, 2024
10.1 C
Reykjavik

„Eina tilfinningin sem ég finn til pabba míns er reiði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Klara Lind er 19 ára stelpa og aðstandandi alkóhólista, hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það Er Von.

Báðir foreldrar Köru glíma við fíknisjúkdóm. Klara er opin með þessi mál. „Ég var einu sinni í bullandi sjálfsvorkunn og sagði fólki hverju ég lenti í til að láta vorkenna mér en í dag hata ég að fá vorkunn. Ég er stolt að sjá á hvaða stað ég er í dag“.

Sat ein út í bíl fyrir utan strippklúbb

Klara bjó ein með pabba sínum eftir að foreldrar hennar hættu saman. Uppeldi Klöru var óeðlilegt með meiru og segir hún í hlaðvarpinu frá nokkrum atvikum sem voru hluti af hennar daglega lífi: „Ég man eftir mér, ein úti í bíl, fyrir utan strippklúbb niðri í bæ meðan að hann var inni í nokkra klukkutíma, ég spilaði snake í símanum á meðan“.

Þegar Klara var hálfnuð með fimmta bekk, 10 ára gömul, hitti hún mömmu sína í fyrsta skipti en þá hafði mamma hennar náð tveggja ára edrúmennsku. Ekki leið á löngu þar til mamma hennar féll og segir Klara að erfitt hafi verið að ákveða hvað hún ætti að kalla þessa konu sem hún þekkti ekki neitt. Megnið af tímanum sem Klara bjó hjá mömmu sinni var hún inn og út úr meðferðum og segir Klara það hafa verið erfitt.

„Það sem ég er samt þakklát fyrir er að hún var ekki í miklum samskiptum við mann þegar hún var í því, hún var mest lokuð inni á baði, inni í herbergi eða úti. Ekki mikið að bjóða heim í partý“.

- Auglýsing -

„Ég sagði barnavernd að ég vildi ekki hitta pabba minn, hann beitti mig andlegu og líkamlegu ofbeldi alla daga þegar ég bjó hjá honum. Foreldrar tveggja vinkvenna minna tilkynntu og ég sýndi öll einkenni“.

Aðspurð segir Klara í viðtalinu að hún sé reið út í kerfið þar sem systkini hennar voru ung sett í fóstur. Sjálf var Klara sett í fóstur á Akranesi í áttunda bekk, fóstur sem átti aðeins að vera í tvo mánuði meðan mamma hennar fór í meðferð.

Klara hefur ekki talað við pabba sinn síðan hún lokaði á hann eftir örlagaríka bílferð fyrir átta árum:

- Auglýsing -

„Eina tilfinningin sem ég finn til pabba míns er reiði“.

Vil ekki þróa með mér fíkn

Margt hefur breyst síðan hún fór í fóstur en hún er enn á Akranesi, hún fékk þar það sem hún þurfti og breytti það öllu eins og hún orðar það sjálf.

Klara segir frá fíknitendensum og að hún leiti í mat og að versla ef henni líður illa. „Ég tók ákvörðun fyrir rúmum tveimur árum að sleppa áfengi alveg því það eru miklar líkur á að ég þrói með mér fíkn,” segir þessi skynsama unga stelpa.

Nánar má heyra sögu þessara mögnuðu ungu konu í hlaðvarpi Það Er Von, áföllum hennar, sigrum, sjálfsvinnu, tilfinningum og öllu því sem hefur fylgt því að vera aðstandandi og barn alkahólista og  að alast upp við mikið ofbeldi.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -