- Auglýsing -
Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir líðan Víðis Reynissonar ekki nægilega góða. Þetta kom fram á upplýsingafndi almannavarna í morgun.
„Eins og hjá mörgum sem eru að fara í gegnum þetta þá er dagarnir misjafnir og sveiflur. Það kom smá bakslag hjá honum en þetta er samt á réttri leið hjá honum vonandi,“ sagði Rögnvaldur.
Víðir hefur nú verið veikur af COVID í níu daga. Rögnvaldur ræddi ekki nánar veikindi Víðis en sagði þó: „Við hugsum til hans og óskum honum góðs bata.“