Gústaf Níelsson sendir biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur, væna sneið á Facebook-síðu sinni. Ástæðan er sú að biskup ritaði grein um harkalega brottvikningu flóttafólks í neyð í fyrrinótt þar sem hún sagðist mótfallin slíkum aðgerðum:
„Frú Agnes, biskup Íslands, hættir aldrei að koma manni á óvart,“ segir hann og heldur áfram:
„Hún að vísu stjórnar stofnun, sem nýtur sérstakrar stjórnarskrárverndar og nýtur kjara, sem fæstir Íslendingar geta vænst í striti hversdagsins. Samt veldur það henni vonbrigðum að hún „skuli búa í svona landi.“
Gústaf segir að Agnesi sé „þó frjálst að yfirgefa landið, sem veldur henni vonbrigðum.“
Bætir við:
„Að vísu hefur þjóðkirkjunni hnignað skelfilega undir hennar forustu, en það veldur henni engum vonbrigðum, hvað þá áhyggjum; hún mætti minnast sögunnar um miskunnsama Samverjann (Lúkas 10:25-37) og greiða sjálf úr eigin vasa og hýsa í ríkulegum hýbýlum hælisleitendur, sem verndari kirkju hennar útvegar. Eftir því yrði tekið.“