Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Biggi lögga segir það ekki aumingjaskap að vilja ekki vera á sóttvarnarhóteli

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, heldur því fram á Facebook að sóttvarnarhótelsmálið snúist um grunngildi samfélagsins en ekki aumingjaskap þeirra sem voru skikkaðir þangað.

„Þetta snýst ekki um að einhvern aumingjaskap eða væl hjá fólki sem vill ekki vera á sóttvarnarhóteli. Þetta snýst um ákveðna grundvallarreglu í stjórnsýslu samfélags okkar sem kallast meðalhófsregla. „Stjórnvald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þá gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.“ Að leyfa fólki ekki að taka út sóttkví á eigin heimili heldur hoppa beint í harðasta úrræðið og neyða fólk til að greiða fyrir að dvelja á ákveðnum stað í ákveðinn tíma er gróft brot á þessari reglu. Slíkt lá alltaf fyrir,“ segir Birgir.

Hann segir það hræða sig hve margir vilja fara þessa leið. „Það hræðir mig í raun hversu margir taka virðast taka þessari mikilvægu reglu af léttúð. Fólk hrópar hátt út um allt að við verðum að fara þessa leið. Að það þurfi þá bara að breyta lögunum. Erum við í alvörunni orðin það hrædd að við erum til í að fórna svo stórum prinsip málum samfélagsins? Einn stjórnmálamaður sagði m.a. við mig að það vissu allir að hingað kæmi fólk sem ætlar ekki að virða sóttkví. Var hann þá væntanlega að meina að því væri nauðsynlegt að ganga svona langt. Ég nefndi þá við hann að hingað kæmi líka fólk sem ætlar að brjóta af sér. Hvernig eigum við að bregðast við því? Hvar ætlum við að draga línuna fyrst við erum byrjuð að losa hana í annan endann. Hvers konar samfélag viljum við halda?,“ segir Birgir.

Hann segir málð ekki snúast um kostnað. „Þetta snýst ekki um hótelherbergi og þrjár máltíðir á dag fyrir 50.000 kall. Þetta snýst um grundvallar samfélagsmynd sem fólk hefur í orðsins fyllstu merkingu barist fyrir í ár hundruði. Ef við ætlum að byrja að leika okkur með slík réttindi þá hef ég allavega engan áhuga á að sinna því starfi sem ég sinni í dag,“ segir Birgir og bætir við að lokum:

„Þó svo að það sé kannski erfitt að sjá það þessa dagana þá er meira að berjast fyrir en bara veirufríu samfélagi (eitthvað sem sóttvarnarlæknir sagði að vísu eitt sinn ítrekað að væri óraunhæft). Við munum sigrast á þessari boðflennu og erum á góðri leið. Hverskonar samfélag sitjum við þá uppi með? Við verðum að halda þetta út, bæði í sótt og samfélagsvörnum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -