- Auglýsing -
Leit stendur nú yfir af íbúa á Eskifirði sem ekkert hefur spurst til.
Kemur fram að frá Landsbjörgu eru tólf manns úr þremur björgunarsveitum við leit, sem hófst fyrr í dag.
Mannsins hefur verið saknað „í einhverja daga,“ að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar, Jóns Þórs Víglundssonar.
Leitað hefur verið í bænum; siglt meðfram strandlengjunni.
Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.