Þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, sagði á Alþingi að fangelsismál hjá dómsmálaráðherra, Jóni Gunnarssyni, væru í algjörum ólestri.
Sagði Björn að orðið „hættuástand“ hafi verið notað á fundi fjárlaganefndar í gær; Björn sagði að á fundi nefndarinnar í gær hafi verið greint frá því að 120 milljónir króna þyrfti í fjárauka fyrir málaflokkinn í ár; 200 milljónir á næsta ári til að halda óbreyttu ástandi í fangelsismálum landsins.
Óskaði fjárlaganefnd um upplýsingar um þær fjárheimildir sem vantar upp á; annars vegar fyrir fjáraukann – hins vegar fyrir fjárlögin.
Þingmaðurinn Björn nefndi að fjáraukabeiðnin upp á 120 milljónir króna hafi verið hafnaði í fjármálaráðuneytinu:
„Ég er forvitin að eðlisfari og bað um sömu gögn sem dómsmálaráðuneytið sendi fjármálaráðuneytinu vegna fjármálaáætlunar undanfarin ár – því þið vitið þetta er ekkert nýtt vandamál. Viðbrögðin voru ótrúleg,“ sagði Björn en viðbrögðin voru þau að gögnin væru trúnaðarmál að beiðni fjármálaráðuneytisins.
Björn sagði það vera alveg fáránlegt að þessi gögn teldust trúnaðargögn og einfaldlega kolrangt:
„Enda kveða lög um opinber fjármál um gagnsæi og ákveðna forgangsröðun verkefna“.
Að mati Björns hafi fangelsismálin endað undir niðurskurðarhnífnum; afleiðingin sé hættuástand.