Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Björn um Bjarna: „Það er svo aug­ljóst að hann er að bregðast sinni skyldu“

Björn um Bjarna: „Það er svo aug­ljóst að hann er að bregðast sinni skyldu“
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunnars­son, segir í sam­tali við Frétta­blaðið ­ljóst að Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætti að stíga til hliðar á meðan mörgum spurn­ingum er enn ó­svarað um sölu á hlut rík­is­ins í Ís­lands­banka:

„Mér finnst rosa­lega aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra á ekki að vera neins staðar þar sem hann er mögu­lega fyrir ein­hverju ferli í rann­sókn­inni á þessu. Það er svo aug­ljóst að hann er að bregð­ast sinni skyldu, sinni á­byrgð, gagn­vart þeirri á­kvarð­ana­töku sem hann á að fara í,“ segir Björn og vísar til þess að ráð­herra hafi ekki óskað eftir meiri upp­lýs­ingum þegar fjöldi til­boða í hlut rík­is­ins lá fyrir:

Bjarni Bene­dikts­son.

„Banka­sýsl­unni var aug­ljós­lega hent undir rút­una, það var al­gjört klúður. Það var mjög aug­ljóst frá upp­hafi og í raun­inni var þáttur fjár­mála­ráð­herra bara ekk­ert skoð­aður. Það er þarna gagn­rýni á að það hafi verið aug­ljós mis­tök við undir­bún­ing og það er fjár­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráð­herra sem er þarna í undir­bún­ingnum og hann er þarna í á­kvarð­ana­tök­unni um verð, magn og svo­leiðis.“

Björn segir á­huga­vert að svo virð­ist sem fjár­mála­ráð­herra hafi fengið rangar upp­lýs­ingar varð­andi söl­una:

„Það er ekki nægi­lega vel út­skýrt í skýrsl­unni en það virð­ist vera að hann hafi fengið rangar upp­lýs­ingar, sem er rosa­lega al­var­legt að ráð­herra fái rangar upp­lýs­ingar fyrir svona stóra á­kvarð­ana­töku en þegar upp­lýs­ing­arnar eru á þann hátt að það eru 150-200 til­boð að ráð­herra biðji ekki um að fá ná­kvæm­ari upp­lýs­ingar. Mér finnst þetta vera al­gjör á­fellis­dómur yfir ferl­inu. Mér finnst það aug­ljóst að klúðrið er það mikið að ég þarf ekki frek­ari rann­sókn til þess að segja að þetta er greini­lega eitt­hvað sem varðar ráð­herra­á­byrgð, það er mín skoðun. Póli­tískt er þetta nóg fyrir mig. Hvort að síðan laga­lega séð, hvort að á­byrgðin komi inn, það er flókn­ara,“ segir Björn, sem er ekki á­hyggju­fullur yfir því að skýrsl­unni hafi verið lekið til fjöl­miðla sólar­hring áður en hún birt­ist al­menn­ingi:

„Áður birti Ríkis­endur­skoðun þessar skýrslur strax en þingið bað um auka tíma fyrir þing­menn til þess að lesa skýrsl­una áður en fjöl­miðlar væru farnir að segja um niður­stöður skýrsl­unnar. Þá hefði þingið smá tíma áður en það væri búið að reka hljóð­nema framan í þau ó­lesin að koma með at­huga­semdir, en það var síðan ekk­ert vanda­mál. Þetta er klass­ísk af­vega­leið­ing, að kalla þetta brot á trún­aði en þessi trún­aður er ekki neitt. Þetta eru smá tafir á birt­ingu, tíma­bund­inn trún­aður fyrir á­kveðið svig­rúm fyrir þing­menn sem var þegar til staðar hvort eð er. Ég hef engar á­hyggjur af þessu, þetta er ekki trún­aðar­brestur fyrir fimmaura,“ sagði Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Lögregla sinnti umferðarlagabrotum, þjófnaði úr verslun og ónæði í verslunarmiðstöð í gærkvöldi og nótt.
Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi