Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Blekkjandi umbúðir frá MS – 37 prósent verðmunur á sama ostinum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Neytandi sem verslaði tvo poka af rifnum osti frá MS varð undrandi þegar í ljós kom að annar pokinn kostaði 599 krónur en hinn 822 krónur. Á pokunum er 37 prósent verðmunur. Eini munurinn á umbúðunum er sá að á öðrum segir „ódýrt“ en hinum „tilboð“. Pokarnir voru á sama stað í hillu hjá versluninni Skagfirðingabúð.

Hér má sjá strimilinn með mismunandi verðum

Aðilinn sem keypti pokana merkti Sunnu Gunnars Marteinsdóttur sem starfar hjá MS í innlegg sem sett var inn samfélagsmiðla, kallaði eftir svörum frá henni um málið. Svar Sunnu var eftirfarandi: „Þarna er MS rifinn ostur á tilboði sem var pakkað + merkt á tilboði og venjulegar pakkningar. MS selur vörurnar í heildsölu frá sér og eftir það gildir frjáls álagning verslana“

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eru pokarnir nánast alveg eins og nánast ómögulegt fyrir neytendur að þekkja þá í sundur. Ættu ódýrari vörur eða vörur á tilboði til neytenda ekki að skera sig úr fremur en að vera nákvæmlega eins útlítandi, maður skyldi ætla það.

Hér má sjá að pokarnir eru nákvæmlega eins
Vinstri pokinn er BF 29.04 21 og sá hægri BF 26.05 21

Einnig kemur upp sú spurning, af hverju er verið á sama tíma að selja bæði tilboðs rifinn ost og ódýran rifinn ost? Það má vera að heildsöluverðið frá MS sé tilboðsverð og ódýrt til verslana, en eftir að þær hafa lagt á vörurnar hljóma orðin tilboð og ódýrt eins og  kaldhæðni.

Hjá MS er einungis ein vara skráð, ekki þessar tvær útgáfur af sama ostinum. Mætti ekki bara sleppa því að merkja vöruna með orðinu ódýrt, en þegar um tilboð væri að ræða merkja þá pokann sem tilboðs poka ?

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -