Úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála er á því að ákvörðun byggingarfulltrúans um að samþykkja byggingaleyfisumsóknir fyrir gamla bandaríska sendiráðið við Laufásveg hafa verið yfir verulegum annmörkum, samkvæmt ruv.is.
Gamla bandaríska sendiráðið stendur við Laufásveg; til stendur að breyta því í íbúðir fyrir flóttamenn.
Áætlað var að ráðast í miklar breytingar á sendiráðinu við Laufásveg 21 til 23. Stendur til að hýsa þar um áttatíu hælisleitendur.
Hafa nágrannar lýst yfir óánægju sinni með áformin; létu hana glöggt í ljós er framkvæmdirnar voru kynntar á fundi umhverfis-og skipulagsráðs í febrúar síðastliðnum.
Reykjavíkurborg lét sér fátt um finnast; um miðjan mars samþykkti byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar leyfi fyrir framkvæmdunum.
Þá kærðu íbúarnir ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála; sem sögðu framkvæmdirnar ekki vera í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur; að það hefði verið villandi í grenndarkynningu að tala um búsetuúrræði.
Fyrir lægi að gæsla yrði til staðar allan sólarhringinn og að umfang starfseminnar væri töluvert; það væri háð deiliskipulagi.
Bendir úrskurðarnefndin á í niðurstöðu sinni að fjörutíu herbergi eiga að vera í húsinu fyrir 75 til 85 umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Fyrirmæli aðalskipulags kveða á um að þannig búsetuúrræði innan íbúðarbyggðar séu háð því að gerð sé grein fyrir þeim í deiliskipulagi; það hafi því ekki verið nóg hjá Reykjavíkurborg að grenndarkynna framkvæmdirnar sem séu verulegir annmarkar á.
Óhjákvæmilegt sé því að fella ákvörðun byggingarfulltrúans úr gildi.