Þriðjudagur 21. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

Brjánn faðir Birnu: „Maður myrti dóttur mína, yndið mitt – Ég ákvað að fyrirgefa honum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Brjánn Guðjónsson er faðir faðir Birnu Brjánsdóttur sem Thomas Fredrik Møller Olsen myrti í janúar árið 2017. Thomas var dæmdur í átján ára fangelsi fyrir morðið í september árið 2017.
Brjánn ritar afar áhugaverðan pistil á Facebook-síðu sinni um fyrirgefninguna.
Brjánn segir að hann tengi ekki við orðræðu Sigríðar Þorgeirsdóttur, prófessors í heimspeki, sem var í viðtali við Kastljós, en Sigríður vill meina að hugtakið „fyrirgefning“ eigi ekki við í umræðu um #metoo mál:
„Ég byrjaði að horfa á Kastljós. þar var til viðtals Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki. eftir fyrsta svar hennar nennti ég ekki að hlusta lengur.
Hún er ef til vill hámenntuð og fín, en hefur líklega enga reynslu af því sem hún er að tala um,“ skrifar Brjánn og heldur áfram:
„Fyrirgefning og afsökun eru algerlega gerólíkir hlutir; afsökun er að líta svo á að sök einhvers gagnvart manni verði afmáð. eitthvað sem einhver gerði á manns hlut muni maður eftirleiðis líta framhjá og jafnvel gleyma með tímanum. Svona eins og ef einhver gleymdi að sækja mann út á stoppistöð.
Fyrirgefning er allt annað og fyrirgefning felur alls ekki í sér afsökun; fyrirgefning er að láta af hatri eða öðrum vondum tilfinningum í garð einhvers sem hefur gert á þinn hlut.“
Brjánn telur að „þetta tvennt er svo gersamlega ólíkt að ég þurfti að spóla til baka og hlusta aftur á hvað prófessorinn sagði.
Maður myrti dóttur mína. yndið mitt.
Ég ákvað að fyrirgefa honum.
Í því fólst ekki afsökun. Sökin verður aldrei afmáð og megi hann rotna fyrir mér.
Ég ætla samt ekki að skaffa honum herbergi í hausnum á mér, sem ég myndi gera með að vera uppfullur af hatri sem myndi gera engum skaða nema mér sjálfum.
Þannig að ég ákvað að fyrirgefa (ekki afsaka) til að losna við hann.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -