Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Brottrekni barnaníðingurinn var í framboði í vor: „Heldurðu að þú verðir harður?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eins og Mannlíf greindi frá í gær þá var karlmanni vikið frá störfum í Húsasmiðjunni vegna meintrar kynferðislegrar áreitni í garð 12 ára drengs.

Maðurinn starfaði sem yfirmaður í einni af verslunum Húsasmiðjunnar, áður en hann fékk sparkið.

Meinti barnaníðingurinn var á lista stjórnmálaflokks fyrir kosningarnar í vor í sveitarfélagi nálægt höfuðborgarsvæðinu.

Það var Tálbeitan á TikTok sem fletti á dögunum ofan af þessum meinta barnaníðingi sem hugðist hitta 12 ára strák.

Fylgjendur aðgangsins á TikTok könnuðust við manninn; í athugasemdum við færsluna kom fram ábending um að maðurinn ynni sem yfirmaður í einni af verslunum Húsasmiðjunnar.

Fór svo að fjölmargir fylgjendur tálbeitunnar merktu Húsasmiðjuna í athugasemdum.

- Auglýsing -

Nokkrum dögum síðar kom athugasemd frá umsjónarmanni TikTok aðgangsins að manninum hafi verið vikið úr starfinu hjá Húsasmiðjunni: „Það er búið að reka hann,“ sagði í færslunni.

Mannlíf leitaði viðbragða hjá Húsasmiðjunni. Rætt var símleiðis við Eddu Björk Kristjánsdóttur mannauðsstjóra Húsasmiðjunnar. Samkvæmt beiðni hennar hefur fyrirtækinu borist skrifleg fyrirspurn. Enn hafa engin svör fengist.

Fréttin verður uppfærð þegar svör berast.

- Auglýsing -

Forsaga málsins er að maðurinn nálgast tálbeituna að fyrra bragði á SnapChat. Hann tjáir sig og segist vera 45 ára gamall og spyr tálbeituna um aldur. Sá segist vera 12 ára gamall. Samtalið heldur áfram og maðurinn biður tálbeituna um myndir af lim drengsins til sönnunar á hversu graður hann sé. Samtalið heldur áfram og maðurinn virðist véfengja myndir tálbeitunnar. Hann bendir á að myndirnar sýni ekki sama getnaðarliminn.

„Þú ert 12 ára og það er glæpur fyrir mig að ríða þér,“ skrifar maðurinn til tálbeitunnar sem segist ekki nenna að tala lengur við hann og spyr hvort hann ætli að hitta sig eða ekki.

Maðurinn svarar:

„Mig langar,“ og bætir við:

„Ég veit þér er sama, en ég gæti farið í fangelsi.“

Maðurinn bendir tálbeitunni á að hann geti verið kærður fyrir það eitt að senda mynd af getnaðarlimi sínum. Þrátt fyrir það sammælast þeir um að hittast í bíl mannsins og stunda samræði.

Maðurinn viðurkennir að vera bæði stressaður og graður og spyr tálbeituna:

„Heldurðu að þú verðir harður?“

Í myndskeiðinu sést bifreið mannsins. Tálbeitan gengur að bílnum og segir ökumanninum að opna. Í samtali þeirra á milli segir maðurinn ekkert hafa ætlað sér með drenginn og lofar að gera aldrei neitt þessu slíku aftur. Fram kemur að þeir hafa verið að spjalla saman í tvo eða þrjá daga.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -