Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

Bryndís klagar Gunnar Hrafn til Landlæknis: Sökuð um falskar minningar um meint ofbeldi Fjölnis

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alls hafa tíu mæður sent kvörtun til embættis Landlæknis vegna vinnubragða matsmanns í forsjármáli: Ein þeirra er Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona.  Hún segir í kvörtun sinni að áðurnefndur matsmaður geri henni upp falskar minningar varðandi ofbeldi af hálfu barnsföður síns, Fjölnis Þorgeirssonar:

Fjölnir Þorgeirsson

„Lýsir föður í raun saklausan, með vísan til framburðar hans, og þrátt fyrir lögregluskýrslur, framburð vitna og vitnisburð annarrar barnsmóður föður um ofbeldi.“

Ofantalið kemur fram í tilkynningu frá Líf án ofbeldis sem sagt var frá í síðustu viku; þar kom fram að tíu mæður hafa sent kvörtun til embættis Landlæknis vegna þess sem þær ófagleg viðbrögð og „hlutdrægni sálfræðinga sem taka að sér hlutverk dómkvaddra matsmanna; og sérfróðra meðdómsmanna í forsjármálum.“

Sálfræðingarnir eru þrír talsins: Guðrún Oddsdóttir, Gunnar Hrafn Birgisson og Ragna Ólafsdóttir. Óskað hefur verið eftir viðbrögðum frá þeim vegna kvartananna: Engin svör hafa borist frá þremenningunum.

Gunnar Hrafn Birgisson

Afrit af kvörtununum tíu fylgdu tilkynningunni frá Líf á ofbeldis, sem eru baráttusamtök mæðra og uppkominna barna, sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjármálum. Kvörtunin, sem greint er frá hér að ofan, frá Bryndísi Ásmundsdóttur vegna starfa Gunnars Hrafns sem matsmanns í forsjármáli – var send til embættis landlæknis 26. ágúst í fyrra.

„Áfengissaga föður er nefnd en í niðurstöðu kafla er hann sagður vera edrú, án þess að neitt sé í matsgerð sem styðji þá fullyrðingu og fær faðir því ólíka meðferð hjá matsmanni sem á að vera hlutlaus fagaðili,“ segir í kvörtun Bryndísar, og telur hún matsmann vera mjög hlutdrægan í mati sínu:

- Auglýsing -

„Þá virðist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og matsmaður því alls ekki óhlutdrægur í mati sínu. Matsmaður svarar ekki spurningum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki drenginn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifrildi sé á heimilinu; þrátt fyrir að í málinu liggi fyrir hljóðupptaka þar sem tveir synir föður ræða saman um framkomu föður við þá.“

 

Hér að neðan má lesa í heild kvörtun Bryndísar vegna starfa Gunnars Hrafns:

- Auglýsing -

Matsmaður er hlutdrægur í mati sínu, en þar sem aðilar fá svipaða niðurstöðu á prófum eru þær settar fram á mjög ólíkan hátt.

Niðurstöður föður eru settar fram á mun jákvæðari hátt en niðurstöður mínar, jafnvel þó svo að niðurstöður aðila séu þær sömu.

Þá virðist almennt mikið gert úr mínum brestum á meðan lítið er gert úr brestum föður og matsmaður því alls ekki óhlutdrægur í mati sínu.

Þá gengur matsmaður það langt að hann sest í raun í dómarasætið varðandi ofbeldi föður gagnvart mér þar sem hann lýsir föður í raun saklausan, með vísan til framburðar hans og þrátt fyrir lögregluskýrslur, framburð vitna og vitnisburð annarrar barnsmóður föður um ofbeldi.

Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur gerir mér upp falskar minningar um ofbeldið sem er órökstutt með öllu og með öllu ófagleg greining þar sem falskar minningar eru í besta falli umdeilt hugtak; auk þess sem framburður minn um ofbeldi af hálfu barnsföður styðst við framburð vitna hjá lögreglu og framburð annarrar barnsmóður hans.

Ekki eru kannaðar frásagnir annarra um ofbeldi og er alfarið skv. framburði mínum.litið framhjá framburði fyrrum barnsmóður sem varð fyrir ofbeldi og ekki rætt við son hans sem varð fyrir ofbeldi af hans hálfu

Þá er í matsgerð áberandi lítið af mælitækjum; ekki eru notaðir skimunarlistar sem mæla þunglyndis- og kvíðaeinkenni og heldur ekki mælitæki sem meta einkenni persónuleikaraskana – en matsmaður leyfir sér samt sem áður að greina mig með persónuleikaröskun, en tilgreinir ekki hvaða persónuleikaröskun ég er með.

Matsmaður túlkar mikið út frá persónuleikaprófi sem er úrelt og mjög umdeilt og er ekki notað neins staðar nema í forsjármálum af sumum matsmönnum. Það er ekki staðlað á Íslandi og er með mjög slakan innri áreiðanleika. Einnig er innbyggð kynjaskekkja á mælikvarða sem mælir hvort fólk sé að fegra sig á prófinu (L-kvarði).

Varðandi neyslu þá gerir matsmaður þá ályktun að ég sé í neyslu lyfja út frá framburði barnsföður en lítur framhjá því að Barnavernd taldi enga neyslu eða áfengisneyslu í gangi hjá mér og að geðlæknir minn telji mig ekki eiga í vandræðum með lyfjanotkun.

Matsmaður svarar ekki spurningum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki drenginn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifrildi sé á heimilinu, þrátt fyrir að í málinu liggi fyrir hljóðupptaka þar sem tveir synir föður ræða saman um framkomu föður við þá; aðeins er rætt við dreng í gegnum föður og á heimili hans, en ekki á heimili mínu sem er jafnframt lögheimili drengsins.

Þá fékk ég ekki tækifæri til þess að fara yfir og staðfesta þær upplýsingar sem fram koma í matsgerð líkt og staðhæft er í matinu og hafði hann rangt eftir mér í matsgerðinni. Þrátt fyrir að hafa leitast eftir því sjálf í tölvupósti.

Auk þess sem að einhverju leyti er rangt haft eftir þeim aðilum sem matsmaður ræddi við vegna matsins.

Þá var ekkert rætt við skóla barnins.

Ekki sóttist matsmaður eftir nýjustu gögnum frá barnaverndarnefnd, heldur var aðeins stuðst við gömul gögn þrátt fyrir vitneskju um að nýleg gögn væri að vænta.

Framkvæmd matsins var ekki í samræmi við góða starfshætti þar sem ekki var tekið tillit til veikinda minna og ekki tekið tillit til þessa álags sem fylgdi því að fara í gegnum svona mat. Þar sem matsmaðurinn var á mínu heimili í 9 klst. þar sem ég var látin þreyta próf í framhaldi af löngu samtali við matsmann, þar sem farið var yfir mjög erfiða sögu, þar á meðal erfiða æsku og ofbeldi af hálfu maka.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -