„Spilling hefur verið minna til umræðu í þessari kosningabaráttu en oft áður, sem er svolítið sérstakt,“ segir Brynjar á Facebook-síðu sinni og bætir við:
„Stærstu samtök launamanna, ASÍ og BSRB, hafa blygðunarlaust ausið fé úr sjóðum félagsmanna til að styðja við pólitíska samherja forystumannanna í kosningabaráttunni. Ég myndi ekki gera athugasemdir við það ef þessi samtök væru einkafyrirtæki úti í bæ eða frjáls félög að berjast fyrir ákveðnum málefnum.“
Brynjar segir að „þessi afskipti séu tærasta mynd spillingar í dag. En það heyrist ekki boffs í Gagnsæi, sem var sérstaklega stofnað til að berjast gegn spillingu.“
Brynjar er klár á því hvers vegna það heyrist ekkert í Gagnsæi:
„Ástæðan er einföld. Þetta er allt sama fólkið í sömu pólítísku baráttunni. Þá hefur ekkert heyrst í Pírötum, Viðreisn og Samfylkingunni sem þykjast á tyllidögum vera sérstakir baráttumenn gegn spillingu. Kannski hentar þessi spilling þeim ágætlega.“