Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Brynjar Níelsson: „Ég og frú Andersen höfum verið púuð niður fyrir að tala fyrir réttindum manna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Brynjar Níelsson fyrrverandi alþingismaður segir að „nú fjölgar þeim sem efast um allar þessar sóttvarnaraðgerðir, meira að segja Björn Ingi á Viljanum. Ég var farinn að halda að Bingi væri byrjaður að staupa aftur, en svo mun ekki vera. Ég og frú Andersen höfum verið púuð niður undanfarin misseri fyrir að tala fyrir frelsi og réttindum manna og leyft okkur að efast um að nauðsynlegt væri að ganga svo langt í sóttvarnaragerðum og gert var.“
Þarna á Brynjar við Sigríði Á Andersen fyrrum ráðherra.
Og Brynjar bætir þessu við:
„Það er þekkt í sögunni að stjórnvöld hafi fundið með tiltölulega auðveldum hætti réttlætingu fyrir að takmarka frelsi og réttindi borgaranna. Og síðan er gengið á lagið. Nú má búast við skæðri flensu þótt enginn viti það með vissu. Því þurfum við áfram að vera með meiri íþyngjandi takmarkanir en aðrir. Allt okkar líf snýst jú um Landspítalann og vellíðan fólks þar. Það er eins og enginn annar geti sinnt heilbrigðisþjónustu nema LSH.“
Brynjar segir einnig að „þegar þessi veirufjandi er horfinn ætla ég að spá því að stjórnvöld muni ganga mjög langt í takmörkun á frelsi og réttindum manna með vísan til hamfarahlýnunar þótt það hafi verið miklu hlýrra hjá okkur fyrir nokkur hundruð árum.“
Hann segist ekkert skilja í því af hverju verið sé að „skammast í Þórólfi núna. Það er ríkisstjórnin sem tekur ákvarðanir og ber ábyrgðina. En það er gott að við eigum miklu betri sóttvarnasérfræðinga en aðrar þjóðir.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -