Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að „í vestrænum lýðræðisríkjum er menntun betri og meiri en víðast hvar annars staðar. En það virðist ekki hafa áhrif á gáfur og dómgreind okkar til batnaðar nema síður sé.“Hér koma nokkur dæmi:„Stjórnmálamenn trúa að þeir geti samið um hitastig og veðurfar á jörðinni til framtíðar. Ef svo er vil ég að Íslendingar semji um að veðurfar á Íslandi verði það sama og á landnámsöld þegar landið var skógi vaxið frá fjöru til fjalls og meðalhiti 2 gráðum hærri en í dag.“Heldur áfram og skýtur á hina sænsku Gretu Thunberg:

„Ungmenni, sem ekki náði að ljúka grunnskóla vegna loftslagskvíða, er sæmd heiðursdoktorsnafnbót við vestræna háskóla. Sambærilegir elítuhópar veita peningaverðlaun til manns sem ljóstraði upp um mútur en var aðalgerandi í því broti að eigin sögn.Aðrir brotamenn í því máli hafa enn ekki fundist hér á landi.Er von að spurt sé á hvaða vegferð við erum. Þá held ég að þessi svokallaða 68 kynslóð hafi verið heldur skárri. Hún var allavega skemmtilegri og vitleysan stóð stutt yfir.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir