Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Bubbi telur nóg komið og taka þurfi völdin af Þórólfi sóttvarnarlækni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hörður Ægisson ritstjóri Markaðarins segir að „áfram heldur fárið. Þrátt fyrir að sumir fjölmiðlar og sóttvarnayfirvöld reyni að telja okkur ítrekað trú um annað, þá er ekki nokkurt neyðarástand í gangi. Það hlýtur því raunar að vera orðið lögfræðilegt vafamál hvort sóttvarnalæknir hafi enn umboð til þess að grípa til aðgerða á borð við þær að skikka reglulega með valdboði þúsundir fullfrískra bólusettra einstaklinga, með engin einkenni, í stofufangelsi með tilheyrandi raski fyrir allt samfélagið og atvinnulífið. Með sama framhaldi er aðeins tímaspursmál hvenær hugsandi fólk fer eðlilega að spyrja sig hvort það ætli sér að hlýða þessum ofsafengnu sóttkvíarreglum,“ segir Hörður í leiðara sínum og á Facebook-síðu sinni deilir Bubbi Morthens pistlinum og skrifar einfaldlega við færsluna: „Sammála.“

Og Hörður heldur áfram:

Ef Covid væri að koma upp núna og tíðni alvarlegra veikinda væri eins lág og við sjáum um þessar mundir, myndi tæpast hvarfla að nokkrum manni að tilefni væri til að ganga eins freklega á athafnafrelsi og borgaraleg réttindi fólks í nafni almannaöryggis. Ísland er með eitt hæsta hlutfall bólusettra í heiminum og spítalainnlagnir eru ekki mikið meiri en dæmi eru um úr árlegum inflúensufaröldrum eða svínaflensunni. Eðlilega rekinn spítali, sem af einhverjum ástæðum virðist ekki vera staðan í dag, á að ráða vel við slíkt. Alvarleg veikindi eru sjaldséð og flestir sem greinast með Covid eru ekki veikir. Sjúkdómurinn er nú svo „alvarlegur“ að í flestum tilvikum finnst hann ekki nema með prófi.“

Hörður nefnir að nágrannalönd okkar, svo sem Danmörk og Bretland, séu að aflétta öllum hömlum „þrátt fyrir að vera skemur á veg komin í bólusetningum. Á sama tíma sættum við okkur hins vegar við að framfylgja mun harðari sóttvarnaráðstöfunum, bæði innanlands og eins við landamærin. Það er ekki hægt að lifa við hömlur og ótta til lengri tíma, einkum þegar ljóst er að hættan gagnvart lífi og heilsu fólks er ekki meiri en raun ber vitni. Við búum í frjálsu samfélagi þar sem réttlæta þarf íþyngjandi aðgerðir með sterkum rökum, svo ekki sé talað um þau efnahagslegu, félagslegu og andlegu áhrif sem samkomutakmarkanir og víðtæk grímuskylda hafa á allt atvinnulífið og almenning.“

Hörður segir að „nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að setja grímur á börn,“ finnst einfaldlega að nú sé „mál að linni og forystumenn stjórnmálaflokkanna verða að grípa inn í og taka völdin af sóttvarnalækni, eins og hann hefur raunar sjálfur kallað eftir. Þjóðinni var lofað frelsi og sem næst eðlilegu lífi ef hún tæki við bóluefninu sem yfirvöld mæltu með – og hefur rækilega sannað gildi sitt. Við stóðum við okkar, og nú þurfa stjórnvöld að standa við sitt, annars má búast við því að þeim verði refsað harðlega í komandi kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn ætti að hafa af því verulegar áhyggjur.“

Eðlilega hefur faraldurinn komið illa við alla heimsbyggðina og líka við tónlistarmenn og aðra listamenn sem hafa tekjur af tónleikhaldi og því ekkert óeðlilegt að Bubbi sé „sammála“ Herði um að nóg sé komið, en að tala um að „taka völdin“ af Þórólfi er nú mögulega full mikið af því góða, en fólki er auðvitað frjálst að hafa skoðun.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -