Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Covid 19 á Íslandi snýst um „daglegar æsifréttir um smittölur og róttækar sóttvarnaaðgerðir“

Þor­steinn Friðrik Hall­dórs­son blaða­maður Mark­að­ar­ins og hag­fræð­ingur ritar áhuga­verða grein þar sem fram kemur að hann er ekki á því að Covid 19 sé mikið vanda­mál; miklu frekar eitt­hvað sem sé gert alltof mikið úr og segir að „í háskóla­bænum Uppsölum í Svíþjóð, þar sem und­ir­rit­aður hefur dvalið að und­an­förnu, ber fátt þess merki að veiru­far­aldur geisi.“

Hann bendir á að „þrátt fyrir að hlut­fall bólu­settra Svía hafi ekki enn náð helm­ingi er and­rúms­loftið afslappað, veit­inga­staðir þétt­setnir og grímur sjald­séðar. Svíar hafa sætt sig við að veiran sé komin til að vera og lífið gengur sinn vana­gang. Hingað geta allir Norð­ur­landa­búar, hvort sem þeir eru bólu­settir eður ei, ferð­ast óáreittir.“

Þor­steinn segir að far­ald­ur­inn beri ekki á góma í Uppsölum fyrr en hann hringi heim til Íslands:

„Þar hafa dag­legar æsifréttir um smit­tölur og rót­tækar sótt­varna­að­gerðir séð til þess að veiran er enn efst á baugi. Að sitja í mak­indum á sænskum veit­inga­stað og lesa fréttir íslenskra fjöl­miðla og umræður Íslend­inga á sam­fé­lags­miðlum er eins og að gægj­ast inn í móð­ur­sýk­is­bólu. Hollara að leggja frá sér sím­ann og njóta iðandi mann­lífs­ins hér úti, segir hann og bætir við:

„Tauga­veiklunin sem tröll­ríður öllu hefur sett mark á umræð­una sem er ekki af hinu góða. Fúk­yrða­flaumur hefur iðu­lega mætt þeim sem leggja til að slakað verði á tak­mörk­unum á landa­mær­unum, og með miklu yfir­læti er hæðst að ungum og heilsu­hraustum áhrifa­valdi sem hefur ákveðið að afþakka bólu­setn­ingu.“

Þor­steinn færir í tal að nú þegar hátt í 90 pró­sent full­orð­inna Íslend­inga hafa verið bólu­settir sé tíma­bært að sleppa tak­inu á veirunni – eða öllu heldur losa takið sem veiran hefur á sam­fé­lag­inu að hans mati og segir að við hér á landi þurfum að „ein­blína á að end­ur­heimta lífs­kjör, bæði áþreif­an­leg og óáþreif­an­leg, sem hafa glat­ast. Gríman þarf að fjúka.“

Og bætir við:

„En áfram heldur far­s­inn. Stjórn­völd tóku í gær ákvörðun um að fram­lengja gild­andi sótt­varna­að­gerðir sem fela meðal ann­ars í sér að ung­menni þurfa að bera grímu fyrir vitum sér allan lið­langan dag­inn. Ákvörð­unin varpar ljósi á hversu mik­ill skortur er á skyn­sömum og stefnu­föstum stjórn­mála­mönnum.“

Þor­steinn vill meina að þar sem alþing­is­kosn­ingar eru á næsta leyti sé „fyr­ir­séð að stjórn­mála­flokkar í fylgiskrísu muni reyna að virkja ótt­ann sem hefur gripið um sig. Verður þá í höndum fjöl­miðla að krefj­ast skýrra svara um skoðun flokk­anna á þeim aðgerðum sem gripið var til og sýn þeirra á sótt­varna­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu