Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Dætur saka Björn um misnotkun – Hann vill milljónir frá Stundinni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í morgun fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur aðalmeðferð í meiðyrðamáli Björns Matthíassonar hagfræðings gegn öðrum ritstjóra Stundarinnar og útgáfufélagi Stundarinnar vegna viðtals sem birtist í blaðinu við dætur Björns. Hagfræðingurinn fór fram á fimm milljónir í bætur.

Í viðtalinu, sem birtist í blaði Stundarinnar þann 9. nóvember 2018, komu systurnar fram nafnlaust og sögðu að faðir þeirra hefði misnotað þær sem börn. Ekki var greint frá nafni föðursins en fram kom að hann hefði verið sérfræðingur í ráðuneyti „með fína háskólagráðu frá Bandaríkjunum.“

Birtust brot úr dagbókarfærslum, þar sem önnur systirin, þá níu ára gömul, hafði skrifað að faðir sinn hefði misnotað hana þegar hún var yngri. Myndir voru einnig birtar af systrunum í blaðinu, frá því þær voru börn, en andlit þeirra afmáð.

Í viðtalinu sagði að gögn sýndu að frásagnir af misnotkun hefðu borist yfirvöldum margoft, en samt voru þær þvingaðar af sýslumanni til að umgangast föður sinn. Segir yngri systirin meðal annars frá því hvernig faðir hennar misnotaði hana í þvingaðri umgengni. Vildu systurnar stíga fram og segja frá hvernig kerfið hefði brugðist þeim sem börnum.

Björn Matthíasson.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, annar ritstjóri Stundarinnar og höfundur greinarinnar, mætti Birni fyrir rétti í morgun. Eldri dóttir Björns var einnig mætt í dómssal og sú yngri var með í gegnum netið, þar sem hún er búsett erlendis.
Systurnar völdu það sjálfar að mæta í dóminn, til þess að staðfesta allt það sem haft var eftir þeim í viðtalinu við Stundina.

Segir Ingibjörg, í samtali við Mannlíf, það hafa verið mjög óþægilegt að mæta í dómssalinn og augljóst að dætrunum liði illa. Lýsir hún því einnig hvernig Björn hafi dregið fram bréf sem dætur hans skrifuðu til hans er þær voru litlar þar sem þær segjast sakna hans og þykja vænt um hann. Vildi Björn láta bréfið ganga um salinn, þar á meðal til dóttur sinnar, en hún afþakkaði að sjá bréfið. Björn hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu í málinu og hélt því áfram í morgun.

- Auglýsing -

Að sögn Ingibjargar vildi Björn meina að í kjölfar birtingu viðtalsins við dætur hans, hafi það farið að spyrjast út að hann væri umræddur faðir. Var hann meðal annars rekinn úr gönguklúbbi sem hann var þá í. Ekki fékkst það þó staðfest hvers vegna Björn var rekinn úr gönguklúbbinum.

Ingibjörg bendir á að ekki sé óeðlilegt að slíkt spyrjist út, óháð birtingu viðtalsins, enda hafi ásakanir dætra hans staðið í mörg ár. Samkvæmt Ingibjörgu kom dómari með tillögu að sátt í málinu, að Björn fengi að segja sína hlið í Stundinni, en Björn hafi hafnaði þeirri tillögu.

Ingibjörg tjáði sig einnig um málið á Facebook síðu sinni í gærkvöldi:

- Auglýsing -

„Í fyrramálið þarf ég að fara fyrir dóm vegna starfa minna sem blaðamaður og ritstjóri. Þar mun ég mæta manni sem tilkynnti mér á afmælisdaginn að hann myndi stefna mér fyrir umfjöllun sem ég vann árið 2018. Tveimur árum síðar barst mér fjárkrafa þar sem mér var gert að greiða 5 milljónir króna innan sjö daga, ellegar yrði ég dregin fyrir dómstóla. Af því að dætur mannsins fengu rödd og rými til að tjá sína upplifun af því hvernig kerfið brást þeim í barnæsku, þegar þær báru föður sinn ítrekað þeim sökum að hafa brotið á sér og báðust undan því að þurfa að umgangast hann, án þess að á þær væri hlustað. Á morgun reynir enn á ný á hvort á þær verði hlustað, því þótt faðir þeirra hafi ekki ákveðið að stefna þeim líka þurfa þær engu að síður að mæta honum fyrir dómi og gefa þar skýrslu. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera í þeirri stöðu, auk þess sem faðir þeirra hefur með þessu svipt þær valdinu til að velja sjálfar hvort þær stígi fram undir nafni og mynd til að segja sögu sína. Þær völdu að vera nafnlausar, meðal annars til að hlífa fjölskyldunni en einnig vegna þess hversu erfitt skref það er stíga að standa berskjaldaður frammi fyrir alþjóð með svo viðkvæm persónuleg málefni, en með því að draga mig fyrir dóm opinberar maðurinn bæði hver hann er og þær um leið. Mig langar því að biðja um hlýjan hug og góða strauma.“

Björn lauk meistaragráðu í hagfræði frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hann hefur meðal annars starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Seðlabanka Íslands, EFTA, fjármálaráðuneytinu og sem kennari við Háskóla Íslands.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Björn við vinnslu greinarinnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -