Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Dagskrá Ráðs evrópskra formæðra í tilefni Friðardagsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alþjóðlegur dagur friðar hefur verið haldinn þann 21. september að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna frá 1981. Dagana 20.­-22. september 2019 heldur Ráð evrópskra formæðra Friðarþing á Íslandi. Í því sambandi koma 22 eldri konur frá 14 löndum auk gesta til landsins.

 

Ráð evrópskra formæðra hefur í samvinnu við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi skipulagt veglega dagskrá í tilefni Friðardagsins.

Dagskránna má sjá hér fyrir neðan:

21. september.
Kjarninn í Mosfellsbæ, Þverholti 2:

Bæjarfulltrúar frá Mosfellsbæ og Kópavogsbæ munu opna sýningu klukkan 11:00 með listaverkum frá leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi. Sýningin verður í Mosfellsbæ (í Kjarnanum, Þverholt 2) með yfirskriftinni: Hvernig upplifa og túlka börnin frið í leik og starfi. Dansað verður ævintyri um „Lily Butterfly“ , og með söng ljúkum við þessari stund um frið.

Þjóðminjasafnið og friðarganga um Tjörnina

- Auglýsing -

Eftir hádegi klukkan 14:00 opnar Þröstur Freyr Gylfason, fyrrirverandi formaður Félags Sameinuðu þjóðanna friðardaginn formlega í Þjóðminjasafni, fjórar formæður taka til máls og Páll Óskar og Monika flytja tónlist. Á eftir verður farið friðargöngu um Tjörnina, og við vonum að sem flestir taka þátt í henni. Hún byrjar á Þjóðminjasafni Íslands, niður Tjarnagötu, kringum Tjörnina, með stuttri viðkomu í Ráðhúsinu og til baka. Tekur u.þ.b. 30 – 40 mín.

22. september:

Haldið frá Mosfellsbænum kl. 9:00 út á Reykjanesskaga að Bleikhóli. Þarna verðum við með þakklætisathöfn til Móður Jarðar og þökkum henni fyrir skilyrðislausa ást, sem hún sýnir okkur á hverjum degi. Við ætlum að senda henni strauma af kærleik, væntumþykkju og ljós. Góð orka skiptir máli, sameinuð öll sem ein.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -