Dalsmynni hundagallerí hefur auglýst hvolpa til sölu á Facebook-síðu sinni.
Nokkrar hundategundir hafa verið auglýstar, meðal annars Griffon, Chihuahua, Pug, Miniature pincher og franskur bolabítur.
Matvælastofnun stöðvaði starfsemi Dalsmynnis árið 2018. Dalsmynni hafði þá ræktað hunda í fjölda ára. Kom fram í tilkynningu árið 2018 að ekki hafi verið gerðar varanlegar úrbætur í Dalsmynni.
Þjálfun, umönnun og umhirðu hundanna hafi verið ábótavant. Þá var viðhald húsnæðis ekki fullnægjandi.
Sama ár tilkynnti eigandi Dalsmynnis, Ásta Sigurðardóttir, að hún væri hætt að rækta hunda. Þá sagðist hún hafa brugðist við ábendingum frá MAST og einungis ætla sér að halda hunda sem gæludýr.
Í samtali við Matvælastofnun í gær sagði héraðsdýralæknir málið vera til skoðunar hjá þeim. Sagðist hann ekki geta tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.