Á kvöldin í Húsi Máls og menningar á Laugavegi er stuð öll kvöld vikunnar; þá stígur húshljómsveitin The Honky Tonks á svið og spilar eins og enginn sé morgundagurinn eða dagurinn á eftir honum.
Þeim sem langar að stíga á stokk með bandinu góða er vel tekið; en ekki þora allir.
Áðurnefnd hljómsveit endar tónleika sína gjarnan á laginu Shallow úr kvikmyndinni A Star is Born, sem Bradley Cooper og Lady Gaga sungu svo glæsilega; hljómsveitin býður gjarnan konu úr áhorfendaskaranum að taka lagið með þeim.
Nýverið steig ung og glæsileg stúlka á sviðið og söng lokalag kvöldsins með hljómsveitinni; gerði það vel.
Meðlimir hljómsveitarinnar vissu þó ekki hugmynd hver unga stúlkan var og er; annað en að hún væri erlendur ferðamaður.
Ekki löngu síðar gerði stúlkan sér hins vegar sér lítið fyrir og birti myndband af söngnum á Instagram-síðu sinni; taggaði húshljómsveitina.
Þá kom á daginn að söngkonan unga heitir Carys Zeta Douglas og er nítján ára gömul; dóttir heimsfrægu leikarahjónanna heimsfrægu Michael Douglas og Catherine Zeta-Jones. .