Miðvikudagur 17. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Edda Falak viðurkennir fyrir ritstjórn að hafa sagt ósatt – „Hún biðst velvirðingar á missögninni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Edda Falak blaðamaður Heimildarinnar bað ritstjórn miðilsins velvirðingar á að hafa sagt ósatt í viðtölum fyrir tveimur árum, varðandi stöðu hennar gagnvart fjármálafyrirtækjum er hún bjó í Danmörku. Ritstjórn Heimildarinnar stendur þétt við bak Eddu. Frosti Logason fjölmiðlamaður upplýsti á dögunum að Edda hefði ítrekað sagt ósatt um störf sín í Danmörku þar sem hún hefur lýst því að áreiti hafi átt sér stað.

Í yfirlýsingu frá Heimildinni vegna umfjöllunar um opið bréf Frosta Logasonar til miðilsins er það tekið fram að bakgrunnur Eddu Falak í fjármálum, hvort sem átt er við nám, námsgráða eða möguleg störf, hafi engin áhrif haft á hlutverk hennar hjá miðlinum né ákvarðanir því tengdu, af hálfu ritstjórnar Heimildarinnar. Segir þar einnig að Edda hafi, frá því að hún hóf störf á ritstjórn miðilsins, fylgt ritstjórnarstefnu og starfsreglum Heimildarinnar.

Í yfirlýsingunni er komið sérstaklega inn á umfjöllun og opið bréf Frosta Logasonar og bent á að lögfræðingur hans hafi „undanfarið verið í samskiptum við Heimildina og lagt fram kröfur í tengslum við frásögn fyrrverandi sambýliskonu hans af skriflegum hótunum hans í hennar garð, en frásögn hennar, studd gögnum, kom fram í viðtali við Eddu Falak í fyrra.

Þá er aukreitist komið inn á „ítrekaðar tilraunir til þöggunar, þar sem hún hefur meðal annars verið dregin fyrir dómstóla vegna starfa sinna,“ sem Edda hefur mátt þola og hefur lagst þungt á hana.

Lesa má yfirlýsingu Heimildarinnar hér fyrir neðan. 

Yfirlýsing vegna umfjöllunar um opið bréf Frosta Logasonar 

Vegna starfa og dagskrárgerðar Eddu Falak fyrir Heimildina er rétt að taka fram að bakgrunnur í fjármálum, hvorki nám, námsgráða né möguleg störf, hafði ekki nokkur áhrif á hlutverk hennar eða ákvarðanir því tengdar af hálfu ritstjórnar Heimildarinnar. Frá því að hún hóf störf á ritstjórn Heimildarinnar hefur verið fylgt ritstjórnarstefnu og starfsreglum Heimildarinnar. Ritstjórn Heimildarinnar tryggir og ber ábyrgð á að starfsfólk ritstjórnar fylgi reglum um vinnubrögð blaðamennsku við störf sín. Hvergi hefur borið skugga þar á. 

- Auglýsing -

Edda hefur miðlað því til ritstjórnar að hún hafi í viðtölum fyrir tveimur árum ekki lýst með réttum hætti stöðu sinni gagnvart tilteknum fyrirtækjum á sviði fjármála þegar hún bjó í Danmörku og stundaði nám við Copenhagen Business School árin áður. Hún biðst velvirðingar á missögninni. 

Ráðandi þáttur í ákvörðun forsvarsfólks Heimildarinnar um samstarf í síðasta mánuði var hins vegar auðsýndur ferill Eddu sem viðkemur því að veita þolendum rödd og rými til að deila reynslu sinni, í málum sem hafa samfélagslegt mikilvægi og sýna gjarnan fram á bresti í kerfum sem verja ættu viðkomandi. Í störfum með Heimildinni er unnið eftir verklagi sem felur meðal annars í sér að afla gagna og viðbragða, í því skyni að geta miðlað víðtækum áhrifum ofbeldis á fólk sem á sér gjarnan engan málsvara. 

Vegna umfjallana hlaðvarpstjórnandans Frosta Logasonar um Eddu og opins bréfs hans til Heimildarinnar, sem hefur verið til umfjöllunar í fréttamiðlum, er rétt að taka fram að lögfræðingur á vegum Frosta hefur undanfarið verið í samskiptum við Heimildina og lagt fram kröfur í tengslum við frásögn fyrrverandi sambýliskonu hans af skriflegum hótunum hans í hennar garð, en frásögn hennar, studd gögnum, kom fram í viðtali við Eddu Falak í fyrra. 

- Auglýsing -

Í svari við umfjöllununum um margvíslegar yfirlýsingar Frosta um Eddu skal tekið fram að á undanförnum mánuðum hefur hún mátt þola ítrekaðar tilraunir til þöggunar, þar sem hún hefur meðal annars verið dregin fyrir dómstóla vegna starfa sinna. Allt hefur þetta lagst þungt á hana. 

Annar þáttur Eddu hjá Heimildinni, sem er að fullu leyti frágenginn, er væntanlegur í komandi viku. Fyrir hönd Heimildarinnar, 

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson ritstjórar, Jón Trausti Reynisson framkvæmdastjóri og Edda Falak blaðamaður.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -