Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Ef ég sé píku og/eða brjóst fer heilinn á mér (og flestra annarra karla) á flug“

Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi

Það er óhætt að segja að viðbrögð innan Pírata­spjallsins séu misjöfn við hugmyndum Reykja­víkurborgar til að koma til móts við transfólk í sund­laugum borgarinnar. Reykja­víkurborg hefur gefið út leið­beininga­bækling fyrir starfs­fólk íþrótta­mannvirkja vegna kvartana um transfólk. Píratinn Dóra Björt Guðjóns­dóttir, formaður mann­réttinda-, nýsköpunar- og lýðræðis­ráðs, segir í samtali við Frétta­blaðið að borgin vilji vera í farar­broddi er komi að mann­réttindum. Hún fullyrðir að lög um kynrænt sjálfræði festi í sessi rétt trans­kvenna til að fara í kvenna­klefa.

Sumir innan Pírata­spjallsins telja að með þessu sé verið að ganga á rétt meirihlutans. „En hvað með þau sem finnst þetta óþægilegt hvar er réttur þeirra, því er ekki svarað í þessari grein,“ skrifar Jökull nokkur.

Þessu svarar Edda nokkur sem segir: „Það er mikil­vægara að minnihluta­hópum líði vel en forréttinda­hópum. Best væri auðvitað að öllum líði vel en það er ekki að fara að gera neinum illt að fólk fari bara í þá klefa sem því líður best í. Það myndi ekki gera mér neitt þó að kæmi einstaklingur með typpi í kvenna­klefann.“

Víðir nokkur segir þessa stefnu eingöngu hugsa um upplifun trans­fólks. „Þarna er bara verið að hugsa um upplifun trans­fólks en ekki allra hinna. Hver er upplifun manna og drengja að sjá píku í katla­klefanum eða upplifun kvenna og stúlkna að sjá typpi í kvenna­klefanum? Sér klefar fyrir þá sem vilja…….frábært. Hitt ekki.“

Víðir heldur svo áfram í annarri athugasemd og segir engu skipta hversu mikla fræðslu hann fær. „Það er alveg sama hve mikla fræðslu ég fæ eða hversu woke ég næ að verða, ef ég sè píku og/eða brjóst fer heilinn á mér (og flestra annara karla) á flug. Og inni í karla­klefa er það eitthvað sem mig langar ekki að upplifa. Og ætti ekki að þurfa að upplifa.“

Víðir segir þetta ekki vera boðlegt. „Þetta er ekki fyrir augunum á manni alla daga og á aldrei eftir að sjá svona milljón sinnum. Kvenn líkamar eru huldir klæðum alla daga. En svo allt í einu sèr maður svoleiðis kvik nakinn í sturtu­klefa og það á að vera fullkomnlega eðlilegt og ef mèr líður skringi­lega á èg bara að vera úti. Nei!!! Það er ekki í boði.“

Hulda nokkur tekur undir með honum og skrifar: „Ef ég er alveg heiðarleg, þá myndi mér líða illa í sturtu með ókunnum karl­mönnum (trans­konum). Og ef ég ætti dóttur á aldrinum 7-17 ára er ég efins um að ég byði henni upp á það.“

Ingimundur nokkur spyr hvort það verði ekki kvartað undan því ef karlmanni rísi hold í sturtu­klefunum af þessu ástæðum. „Ég held að allir geti séð fyrir sér óþæginda­tilfinningu ef viðkomandi var ekki undir það búinn að einstaklingur með líkams­útlit annars kyns sé með viðkomandi í búnings­klefa og sturtum, ef um er að ræða eldri einstaklinga en ca 6-7 ára. Og segjum að einstak­ingurinn örfist kynferðis­lega við slika sýn, skiptir ekki máli ef er kona því minni einkenni eru, en ef unglings­pilti eða karlmanni rísi hold, þá munu óánægju­raddir vakna ímyndar fólk sér. Óþægileg staða.“

Að lokum virðist móðir Dóru Bjartar, Guðrún Barbara Tryggva­dóttir, reyna að skera á þennan hnút. Hún skrifar: „Þau fara í einka­klefana og allir sáttir. Lífið er ekki svart og hvítt heldur marglitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim