Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

„Ég sakna barnanna minna mikið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslendingar sem eru staddir erlendis eiga sumir hverjir í stökustu vandræðum með að komast til landsins. Rúnar Ásþór Ólafsson, sölumaður og frumkvöðull, er einn þeirra.

Þrátt fyrir að landamæri innan Schengen-svæðisins séu jafnt og þétt að opnast getur það engu að síður verið vandkvæðum bundið að ferðast innan þess. Viðmælendur Mannlífs, Íslendingar sem eru staddir erlendis, óttast sóttkví, einangrun og að flug verði felld niður og kvarta undan því að þurfa að fara jafnvel langar krókaleiðir til að komast leiðar sinnar. Þeir segja að til að komast til Íslands þurfi oft og tíðum að fara í tvö til þrjú flug og kostnaðurinn sé margtfalt meiri en áður.

„Þetta er ömurleg staða og börnin mín bíða eftir því að fá pabba sinn heim. Maður getur reynt að koma sér með einhverjum krókaleiðum en samt eiginlega ekki því líkurnar á því að flugið verði fellt niður eru miklar,“ segir Rúnar Ásþór Ólafsson, sölumaður og frumkvöðull, sem hefur verið búsettur á Spáni síðastliðin sex ár og hefur verið fastur þar undanfarnar vikur.

„Ég sakna barnanna minna mikið og er alltaf að segja þeim að ég sé að koma en svo gengur það aldrei.“

„Þetta er auðvitað búið að vera bras. Við ætluðum aðeins til Íslands en gáfumst upp á því að reyna finna flug. Konan er búin að bíða í svolítinn tíma með að komast heim.“

Rúnar Ásþór hefur einnig leitað leiða undanfarið til að komast til Íslands. Það hefur hins vegar gengið vægast sagt illa segir hann. „Sem betur fer slapp sonur minn til landsins áður en ósköpin dundu yfir en ég er heldur betur búinn að lenda í heljarinnar veseni við að koma mér til Íslands. Ég hef bókað þrjú mismunandi flug með sitthvoru flugfélaginu en þeim hefur öllum verið aflýst,“ segir Rúnar Ásþór.

Þegar Rúnar Ásþór hafði þrívegis lent í því að fluginu hans var aflýst ákvað hann að reyna að fá sérstaka vél frá Icelandair til að sækja sig og aðra þá sem voru fastir í landinu og vildu til Íslands. „Þeir tóku vel í þetta í byrjun en því miður varð ekki úr þessu. Það fannst mér mjög leiðinlegt því það voru margir sem vildu með. Ég sakna barnanna minna mikið og er alltaf að segja þeim að ég sé að koma en svo gengur það aldrei. Ég hef verið fastur á Spáni og það er sárt.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -