- Auglýsing -
„Góða kvöldið. Þykir ofsalega erfitt að setja þetta hér inn. En staðan hjá mér er því miður svona: Ég er einstæð móður með tvö börn á framfæri, 12 og 2 ára. Peningarnir kláruðust fyrir nokkrum dögum og búin að selja allar dósir og gera allt sem ég get eða dottið í hug.“
Svona hljómar neyðarkall ungrar tveggja barna móður sem sendir út neyðarkall í fjölmenna hópa á Facebook. Hún skammast sín svo fyrir neyðina að þar kemur hún ekki fram undir eigin nafni og því gerir hún það ekki heldur hér. Í færslum sínum og í þessari grein er hún kölluð Helga.
„Maturinn alveg búinn – bleyjurnar og mjólkin líka, aðeins tvær brauðsneiðar eftir sem fara í nestið ásamt síðasta eplinu,“ skrifar Helga. Hún biður um fjárhagsstuðning frá netverjum eða mat til mánaðamóta; biður ekki um mikið.
Þeir sem sjá sér fært um að styðja Helgu á þessum erfiðu tímum er bent á reikningsupplýsingar hér að neðan:
Bankaupplýsingar: 0160-26-01122
Kennitala: 210987-3639
Helga er líka með bónuskort – Kortanúmerið er 9352 0031 5202 1545621