Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Ekkert hefur heyrst frá John Snorra í sólarhring-Leitað á K 2

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ekkert hefur heyrst frá Johns Snorra Sigurjónssyní í rúman sólarhring þegar hann var í 7800 metra hæð á  K 2 að nálgast hæsta tind sem er í 8600 metra hæð. Staðsetningartæki hans hefur ekki sent frá sér boð síðan um það leyti. Leit er að hefjast að John Snorra og félögum hans tveimur, þeim Juan Pablo Mohr og Ali Sadpara. Þyrla með leitarmenn fer upp í fjallið í dag,  eins langt og hún kemst. Félagarnir fjórir lögðu upp í lokaáfangann á tindinn á fimmtudagskvöld.  Fjórði maðurinn í leiðangri þeirra snéri við þar sem súrefnistæki hans virkaði. Þyrla verður send með leitarmenn upp í fjallið í dag.

John Snorri og félagar hans sem saknað er á K 2.

Gríðarlega erfiðar aðstæður eru á fjallinu, sem er eitt þþað mmannskæðasta í heimi. Allt að 40 stiga frost er á toppnum og vindkæling. Vonast er til að félagarnir þrír komist af í þessum hrikalegu aðstæðum. Þeir eru allir þaulreyndir fjallgöngumenn og í góð formi. John Snorri er einn allra fremsti fjallgöngumaður Íslendinga og hefur sigrað flesta af hæstu tindum heims. Hann hefur komið á K 2 að sumarlagi en hugðist ná að verða fyrstur til að toppa fjallið að vetrarlagi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -