Þriðjudagur 16. apríl, 2024
-0.8 C
Reykjavik

Ekkert því til fyrirstöðu að Aron Einar Gunnarsson verði valinn í landsliðið á nýjan leik á morgun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á morgun mun þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, Arnar Þór Viðarsson, tilkynna landsliðshópinn fyrir leiki sem fram fara síðar í þessum mánuði.

Íslendingar mæta Venesúela í vináttulandsleik, sem fram fer í Austurríki, eftir viku.

Aðeins 5 dögum síðar mætir íslenska karlalandsliðið Albaníu í lokaleik sínum í Þjóðadeildinni.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er vel hugsanlegur sá möguleiki að fyrrum fyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson, muni á nýjan leik spila fyrir hönd þjóðarinnar.

Nú er nokkuð um liðið síðan ríkissaksóknari tilkynnti um niðurfellingu á rannsókn á meintu nauðgunarmáli hans og fyrrum landsliðsmannsins Eggerti Gunnþóri Jónssyni.

Ljóst er samkvæmt þeirri niðurstöðu að Aron Einar hefur verið hreinsaður af ákærunni og í raun ekkert sem segir að það sé eitthvað óeðlilegt að hann verði valinn í hópinn á nýjan leik – en Aron Einar hefur ekkert leikið með landsliðinu síðan í júní á síðasta ári.

- Auglýsing -

Sem fótboltamaður er Aron Einar enn í fullu fjöri, og á enn töluvert inni þrátt fyrir langan feril.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -