Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ekki ljóst hvenær miðasala hefst

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ekki er komið í ljós hvenær opnað verður fyrir miðasölu hjá Play.

 

Þann 5. nóvember héldu forsvarsmenn flugfélagsins Play fund í Perlunni og kynntu áfrom sín. Þar kom fram að stefnt væri að því að hefja sölu á flugmiðum í nóvember og að jóm­frú­arflugið yrði í des­em­ber þar sem félagið væri á lokametrunum í undirbúning. Síðan þá hefur verið greint frá því að hægar gangi að safna hlutaféi heldur en áætlað var.

Fyrr í mánuðinum var svo greint frá því að stofnendur og stjórnendur buðust til að minnka hlutdeild sína í Play í 30% á móti 70% eignarhlut þeirra fjárfesta sem fást til að leggja félaginu til um 1700 milljónir króna í nýtt hlutafé.

Í fyrirspurn Mannlífs til Play um hvort komið sé í ljós hvenær miðasala fer í gang kemur fram að það sé enn óljóst.

„Nei, en við vonum að það fari að styttast,“ segir í svarinu við fyrirspurn Mannlífs.

Sjá einnig: Bjóðast til að minnka hlut sinn úr 50% í 30%

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -