Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Ekki meiða pabba minn!

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það var gamlárskvöld. Við vorum þrír lögreglumenn saman á eftirlitsferð. Ég var yngstur, hinir tveir voru eldri og reyndari, þekktir fyrir manngæsku og umburðarlyndi. Það var gott að vera með þannig mönnum í þessu starfi.

Í gegnum talstöðina fengum við boð um að óskað væri eftir aðstoð lögreglu í heimahúsi, slagsmál höfðu brotist út í áramótagleðskap. Slík útköll voru ekkert óalgeng og yfirleitt auðvelt að róa viðstadda og flytja þá í burtu sem að ekki voru húsum hæfir.

En þetta átti eftir að verða öðruvísi útkall.

Þegar við komum að húsinu stóðu útidyrnar opnar. Út úr húsinu barst mikið háreysti. Við fórum inn. Á stofugólfinu veltust tveir menn um í átökum, báðir blóðugir. Eiginkonur þeirra stóðu hjá og æptu á þá um að hætta. Öldruð móðir annars mannsins sat niðurbrotinn í stofusófanum og hélt á kornabarni sem hágrét í fanginu á henni. Foreldrar hins mannsins, sem líka voru öldruð reyndu ítrekað að taka þátt í átökunum, að því er virtist til að koma syni sínum til aðstoðar frekar en til að stilla til friðar.

En það sem var verst var að þarna voru mörg ung börn, flest langt innan við fermingu og nokkur á leikskólaaldri. Sum voru sem lömuð af skelfingu, önnur reyndu að grátbiðja feður sína um að hætta.

Við skildum mennina í sundur með valdi, það var ekki nokkur leið að biðja þá um að hætta, þeir voru báðir mjög drukknir og því miður báðir þekktir af því að vera ofbeldisfullir með víni. Ég hélt öðrum manninum niðri en félagar mínir reyndu að ná valdi á hinum en það var erfitt því að foreldrar hans réðust með heift á félaga mína. Það er ekki auðvelt að beita aldrað fólk valdi, þetta var erfitt ástand.

- Auglýsing -

Framkoma gamla fólksins gerði illt verra, sonur þeirra æstist allur upp og það gerði konan hans líka þegar reynt var að hafa hemil á gömlu hjónunum. Við þetta bættist barnsgráturinn, öll börnin voru nú farin að gráta hástöfum, hljóðin úr þeim voru átakanleg og nístu hjarta okkar. Þetta var ekki sú fjölskylduskemmtun sem þau höfðu vonast eftir.

Við náðum að kalla eftir aðstoð, það veitti ekki af henni. Við svona aðstæður þarf að róa og hugga fjölskyldumeðlimi, það er ekki nóg að handjárna bara ofbeldismennina og fara svo.

Meðan við biðum eftir aðstoð reyndum við að gera okkar besta við þessar aðstæður. Ég náði að koma handjárnum á þann sem að ég hafði yfirbugað, til þess þurfti að beita nokkru harðræði. Hann jós yfir mig svívirðingum, hótaði bæði mér og öllum sem mér tengdust, í litlu bæjarfélagi þá þekkist fólk.

- Auglýsing -

Ég reisti ofbeldismanninn upp og lagði af stað með hann út í lögreglubílinn. En ég komst ekki með hann út. Í forstofunni stóð lítil stúlka. Hún var í náttkjöl og hélt krampakenndu taki um bangsann sinn með annarri hendi. Litla stúlkan horfði á mig grátbólgnum augum, hún teygði fram lausu höndina til mín og sagði skjálfandi röddu:

„Ekki meiða pabba minn“.

Þetta var mitt fyrsta útkall þar sem börn voru fórnarlömb áfengisneyslu fullorðinna.

Því miður ekki það síðasta.

Jón Óðinn Waage

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -