Alþingiskonan Helga Vala Helgadóttir segir að „skýrsla Ríkisendurskoðanda hefur verið birt. Meðal þess sem kemur fram er að frekari rannsóknar sé þörf.“
Hún bætir við að „nú er það spurning hvort stjórnarflokkarnir þrír muni áfram standa í vegi fyrir því að rannsóknarnefnd Alþingis verði sett til verksins.“
Helga Vala er klár á því hver ber ábyrgðina, og enginn vafi þar á ferð:
„En munum að fjármálaráðherra ber á þessu óskoraða lögbundna ábyrgð. Ekki bara samkvæmt almennum reglum stjórnskipunarréttar heldur einnig sérlögum sem gilda um sölu ríkisins á fjármálafyrirtækjum sem sett voru eftir bankahrunið.“