Þriðjudagur 23. apríl, 2024
11.1 C
Reykjavik

Ástandið um borð í Diamond Princess – Óvissa ríkir og farþegar að „klikkast“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ljósmyndir og lýsingar farþega af ástandinu um borð í Diamond Princess skemmtiferðaskipinu vekja athygli á samfélagsmiðlum. Í skipinu eru rúmlega 3.700 farþegar í einangrun vegna kórónuveirunnar sem kennd er við kínversku borgina Wuhan.

Farþegarnir þurfa að vera 14 daga í sóttkví í skemmtiferðaskipinu við strendur Japan eftir að 20 tilfelli af smiti greindust í skipinu.

Nokkrir farþegar Diamond Princess lýsa ástandinu í skipinu á samfélagsmiðlum.

Farþegar mega ekki yfirgefa herbergi sín í þessa 14 daga. Er fram kemur í frétt Business Insider eru herbergi skipsins afar ólík og misstór, sum eru með svölum og önnur ekki. Á allra ódýrustu herbergjunum eru ekki einu sinni gluggar.

Mynd / EPA

Farþegum er færður matur upp á herbergi en máltíðirnar eru ekki alltaf sérlega lystilegar ef marka má færslur þeirra sem hafa birt myndir af matnum á samfélagsmiðlum.

Farþegar hafa þá sumir gagnrýnt það að fyrsta máltíð dagsins hefur borist mjög seint og vonlaust er að fá séróskir uppfylltar.

- Auglýsing -

 

Lítið upplýsingaflæði

- Auglýsing -

Einn farþegi skipsins, Masako Ishida, lýsti ástandinu í samtali við The New York Times. Hún gagnrýndi upplýsingaflæðið en hún heyrði fyrst af einangruninni í fréttum en ekki frá starfsfólki skipsins.

Hjónin Alan og Weendy Steele höfðu sömu sögu að segja. Þau sögðu í samtali við The Washington Post að farþegar þyrftu að stóla á fjölmiðla hvað nýjar fréttir og upplýsingar varðar þar sem starfsfólk skipsins veita engar upplýsingar. „Það er komið fram við okkur eins og fanga og glæpamenn,“ sögðu þau. Spurð út í líðan sína sögðust þau vera að „klikkast“.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -