Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Boris Johnson og Carrie Symonds eignast son

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Carrie Symonds, unnusta Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands, fæddi son í morgun. Parið sendi fyrir skömmu frá sér tilkynningu þar sem staðfest var að hún hefði eignast „heilbrigðan son á sjúkrahúsi í London fyrr í morgun.“ Talskona forsætisráðherrann segir í samtali við The Guardian að bæði móður og barni heilsist vel og að parið sé í skýjunum með soninn.

Vangaveltur höfðu verið uppi um það hvort Johnson væri orðinn veikur aftur eftir að tilkynnt var að utanríkisráðherrann, Dominic Raab, myndi verða staðgengill hans í fyrirspurnartíma forsætisráðherra frá leiðtoga Verkamannaflokksins, Keir Starmer, í dag en nú er skýringin á fjarveru forsætisráðherrans fengin.

Boris Johnson sneri aftur til vinnu á mánudaginn eftir þriggja vikna fjarveru vegna sýkingar af Covid-19, sem meðal annars leiddi til þess að hann var þrjár nætur á gjörgæsludeild.

Sjá einnig: Fyrrverandi eiginkonan og börnin sögð miður sín

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -